Trúmennska fær sín laun
1 Í Jeríkó bjó maður sem Sakkeus hét. 2 Hann var yfirskattheimtumaður Rómverja og því mjög ríkur. 3 Þegar Jesús var á leið um borgina reyndi Sakkeus, sem var mjög lágvaxinn, að sjá Jesú, en hann gat það ekki vegna mannfjöldans. 4 Hann hljóp því fram fyrir og klifraði upp í mórberjatré, sem stóð við veginn, til að fá góða yfirsýn.
5 Þegar Jesús kom þar að, leit hann upp til Sakkeusar og kallaði: „Sakkeus! Komdu niður! Ég ætla að heimsækja þig í dag."
6 Sakkeus varð mjög glaður. Hann flýtti sér niður úr trénu, fullur eftirvæntingar, og fór með Jesú heim til sín.
7 Þá lét mannfjöldinn óánægju sína í ljós og sagði: „Hví leyfir hann sér að heimsækja slíkan syndara?"
8 En á meðan stóð Sakkeus frammi fyrir Drottni og sagði: „Herra, héðan í frá ætla ég að gefa fátækum helming auðæfa minna. Og hafi ég látið einhvern greiða of háa skatta, þá mun ég refsa sjálfum mér með því að greiða honum fjórfalt aftur."
9,10 Þá sagði Jesús við hann: „Þetta sýnir, að í dag hefur hjálp Guðs veist þessu heimili. Þú varst einn hinna týndu sona Abrahams. Ég, Kristur, er kominn til að leita að hinu týnda og frelsa það."