Fæðing Jesú
1 Um þetta leyti fyrirskipaði rómverski keisarinn, Ágústus, að manntal skyldi tekið um allt Rómaveldi. 2 Þetta fyrsta manntal var gert þegar Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi.
3 Þess vegna urðu allir að fara til ættborgar sinnar og láta skrá sig þar. 4 Þar sem Jósef var af ætt Davíðs konungs, varð hann að fara frá heimabæ sínum, Nasaret í Galíleu, til Betlehem í Júdeu, hinnar fornu borgar Davíðs, 5 ásamt Maríu unnustu sinni sem þá var að því komin að eiga barn.