22 Þegar tími var kominn til að María færði hreinsunarfórn í musterinu, eins og lög Móse krefjast þegar barn hefur fæðst, fóru foreldrar Jesú með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni. 23 Guð segir svo í þessum lögum: „Ef kona fæðir dreng fyrstan barna sinna, skal hann helgaður Drottni."
24 Um leið færðu foreldrar Jesú einnig hreinsunarfórnina, sem lögin kröfðust, en hún varð annað hvort að vera tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur. 25 Í Jerúsalem bjó maður sem Símeon hét. Hann var góður maður og guðrækinn, fylltur heilögum anda og vænti komu Krists, konungsins, sem Guð hafði lofað að senda. 26 Heilagur andi hafði gert honum ljóst að hann mundi ekki deyja fyrr en hann hefði fengið að sjá konunginn Krist. 27 Þennan dag hafði hann einmitt fengið vísbendingu frá heilögum anda um að fara í helgidóminn. Þangað kom hann er María og Jósef komu með barnið til að færa það Drottni, eins og lögin mæltu fyrir um. 28 Símeon tók barnið í fang sér og lofaði Guð.
29-31 Hann sagði: „Drottinn, nú get ég glaður dáið, því ég hef séð þann sem þú lofaðir að ég skyldi sjá. Ég hef augum litið frelsara heimsins! 32 Hann er ljósið, sem lýsa mun þjóðunum, og hann verður vegsemd þjóðar þinnar Ísrael."
33 Jósef og María stóðu hjá og hlustuðu undrandi á það sem Símeon sagði um Jesú.
34,35 Símeon blessaði þau en sagði síðan við Maríu: „Sverð mun nísta sál þína, því margir í Ísrael munu hafna þessu barni og það mun verða þeim til falls, en öðrum verður hann uppspretta gleðinnar. Þannig mun afstaða og hugsanir margra koma fram í ljósið."
36,37 Spákona nokkur, Anna að nafni, var einnig stödd í musterinu þennan dag. Hún var Fanúelsdóttir og af ætt Assers. Hún var orðin háöldruð og hafði verið ekkja í áttatíu og fjögur ár eftir sjö ára búskap. Hún fór aldrei út úr musterinu, heldur dvaldist þar dag og nótt. Hún helgaði líf sitt Guði og lofaði hann með bænahaldi og föstu.
38 Nú kom hún þar að sem Símeon var að tala við Maríu og Jósef og byrjaði einnig að þakka Guði. Hún tók að segja öllum í Jerúsalem, sem væntu komu frelsarans, að Kristur væri loksins kominn.