Pular para o conteúdo
Publicidade

Lúkas 2

41,42 Foreldrar Jesú fóru ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðina, og þegar Jesús var tólf ára, fékk hann i fyrsta skipti fara með. 43 Þegar lagt var af stað heim til Nasaret, hátíðahöldunum loknum, varð Jesús eftir í Jerúsalem.

Fyrsta dag heimferðarinnar söknuðu María og Jósef hans ekki, 44 því þau héldu hann væri meðal kunningja sem áttu samleið. En þegar hann skilaði sér ekki um kvöldið, fóru þau leita hans meðal vina og ættingja. 45 Leitin varð árangurslaus, og því sneru þau aftur til Jerúsalem til leita hans þar.

46,47 Þau fundu hann ekki fyrr en eftir þrjá daga. Þá sat hann í musterinu meðal lögvitringanna og ræddi við þá háleit málefni. Undruðust allir skilning hans og svör.

48 Foreldrar hans vissu ekki sitt rjúkandi ráð: Elsku drengurinn minn," sagði móðir hans, af hverju gerðirðu okkur þetta? Við faðir þinn vorum dauðhrædd um þig og höfum leitað þín um allt!"

49 Hvers vegna voruð þið leita mér?" spurði hann, vissuð þið ekki mér bar vera í musterinu, húsi föður míns?" 50 En þau skildu ekki við hvað hann átti.

51 Síðan fór hann með þeim heim til Nasaret og var þeim hlýðinn, en móðir hans lagði alla þessa atburði vel á minnið. 52 Jesús óx visku og vexti og allir elskuðu hann, bæði Guð og menn.

Veja também