48 Foreldrar hans vissu ekki sitt rjúkandi ráð: „Elsku drengurinn minn," sagði móðir hans, „af hverju gerðirðu okkur þetta? Við faðir þinn vorum dauðhrædd um þig og höfum leitað þín um allt!"
49 „Hvers vegna voruð þið að leita að mér?" spurði hann, „vissuð þið ekki að mér bar að vera í musterinu, húsi föður míns?" 50 En þau skildu ekki við hvað hann átti.
51 Síðan fór hann með þeim heim til Nasaret og var þeim hlýðinn, en móðir hans lagði alla þessa atburði vel á minnið.