25 Þá munu gerast einkennilegir hlutir á himninum – illir fyrirboðar. Fyrirboðar þessir verða á sólu, tungli og stjörnum, en á jörðinni birtast þeir sem angist meðal þjóðanna, í vanmætti við brimgný og flóð. 26 Margir munu missa kjarkinn vegna þeirra skelfilegu atburða sem þeir sjá gerast í heiminum – því jafnvægi himintunglanna mun raskast. 27 Og þá munu þjóðir jarðarinnar sjá mig, Krist, koma í skýi með mætti og mikilli dýrð. 28 Þegar þetta tekur að gerast, þá réttið úr ykkur og lítið upp, því að þá er hjálp ykkar á næsta leiti."