Pétur neitar því að hafa þekkt Jesú
54 Þá gripu þeir Jesú og leiddu til bústaðar æðsta prestsins. Pétur fylgdi í humátt á eftir. 55 Hermennirnir kveiktu bál í húsagarðinum og settust umhverfis það til að hlýja sér, en Pétur smeygði sér inn í hópinn svo lítið bar á.
56 Við bjarmann frá eldinum tók ein þjónustustúlkan eftir honum og gaf honum nánar gætur. Loks sagði hún: „Þessi maður var með Jesú."
57 „Nei, kona góð," svaraði Pétur, „þann mann þekki ég alls ekki."
58 Stuttu seinna tók einhver annar eftir honum og sagði: „Þú hlýtur að vera einn af þeim."
„Nei, herra minn, það er ég ekki," svaraði Pétur.
59 Um það bil klukkustundu síðar fullyrti enn einn þetta og sagði: „Ég veit að þessi maður er einn af lærisveinum Jesú, því að þeir eru báðir frá Galíleu."
60 „Góði maður" svaraði Pétur, „ég skil bara alls ekki hvað þú ert að tala um." En áður en hann hafði sleppt orðinu gól hani.
61 Á sömu stundu sneri Jesús sér við og leit til Péturs. Þá minntist Pétur orða Jesú: „Áður en haninn galar í dag, muntu þrisvar afneita mér." 62 Þá gekk Pétur út fyrir og grét sárt.