Publicidade

Lucas 23

32,33 Ásamt Jesú voru tveir afbrotamenn leiddir til aftökustaðarins sem hét Hauskúpa". Þar voru þeir allir krossfestir, Jesús í miðið, en hinir tveir sinn til hvorrar handar.

34 Þá sagði Jesús: Faðir, fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gera."

Hermennirnir köstuðu hlutkesti um föt Jesú, eina flík í senn. 35 Fólkið stóð og fylgdist með, en leiðtogar þjóðarinnar gerðu gys honum og sögðu: Hann gat hjálpað öðrum, en ætti hann hjálpa sjálfum sér og sanna með því hann í raun og veru Kristur, útvalinn konungur Guðs."

36 Hermennirnir hæddu hann líka með því rétta honum súrt vín drekka. 37 Þeir hrópuðu: Ef þú ert konungur Gyðinga, bjargaðu þá sjálfum þér."

38 Fyrir ofan hann var neglt spjald á krossinn. Þar stóð: Þessi er konungur Gyðinga." 39 Annar afbrotamannanna, sem hékk við hlið hans, sendi honum háðsglósu og sagði: Svo þú ert Kristur, er það ekki? Sannaðu það þá með því bjarga sjálfum þér og okkur."

40,41 Hinn glæpamaðurinn mótmælti þeim fyrri og sagði: Óttastu ekki einu sinni Guð á dauðastundinni? Við höfum unnið til þessarar þungu refsingar, en þessi maður hefur ekkert rangt aðhafst." 42 Síðan sneri hann sér Jesú og sagði: Jesú, minnstu mín þegar þú kemur í ríki þitt."

43 Jesús svaraði: Ég lofa þér því, í dag skaltu vera með mér í Paradís."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-