Publicidade

Lucas 23

Jesús sakfelldur og dæmdur

1 Síðan lagði allt ráðið af stað með Jesú til Pílatusar landstjóra. 2 Er þangað kom, byrjuðu þeir strax ákæra hann: Þessi maður var leiða þjóðina afvega. Hann segir enginn eigi borga skatta til rómversku yfirvaldanna og sjálfur segist hann vera Kristur konungurinn."

3 Ert þú Kristur konungur þeirra?" spurði Pílatus.

," svaraði Jesús, það er eins og þú segir."

4 Þá sneri Pílatus sér æðstu prestunum og mannfjöldanum og sagði: Ég finn alls enga sök hjá honum."

5 Þá æstust þeir um allan helming og sögðu: Hann æsir til andófs gegn yfirvöldunum hvar sem hann fer, um allt skattlandið, allt frá Galíleu þar sem hann byrjaði og hingað til Jerúsalem."

6 Er hann frá Galíleu?" spurði Pílatus.

7 Þegar þeir játuðu því, sagði hann þeim fara með Jesú til Heródesar konungs, því Galílea væri lögsagnarumdæmi hans. Og þannig vildi til Heródes var staddur í Jerúsalem um þetta leyti. 8 Heródesi þótti gaman tækifæri til sjá Jesú, því hann hafði heyrt margt um hann og vonaðist til sjá hann gera kraftaverk.

9 Hann spurði Jesú fjölmargra spurninga, en fékk ekkert svar. 10 Á meðan stóðu æðstu prestarnir og hinir trúarleiðtogarnir þar hjá og ákærðu hann harðlega.

11 Síðan tóku Heródes og hermenn hans hæða Jesú og spotta. Þeir klæddu hann í konunglega skikkju og sendu hann síðan aftur til Pílatusar. 12 Þennan dag urðu Heródes og Pílatus vinir en áður höfðu þeir verið svarnir óvinir.

13 kallaði Pílatus saman æðstu prestana og leiðtoga Gyðinganna, ásamt fólkinu 14 og kunngjörði úrskurð sinn:

Þið komuð hingað með þennan mann og ákærðuð hann fyrir stjórna uppreisn gegn rómversku yfirvöldunum. Ég hef rannsakað mál hans gaumgæfilega og komist þeirri niðurstöðu hann saklaus. 15 Heródes er mér sammála og hann sendi hann aftur til okkar. Þessi maður hefur ekkert gert sem dauða er vert. 16,17 Ég ætla því láta húðstrýkja hann og sleppa honum síðan, enda er venja náða einn fanga á páskunum."

18 Þá kvað við hávært óp frá mannþyrpingunni allir hrópuðu sem einn maður: Burt með hann! Krossfestu hann! En slepptu Barrabasi." 19 (Barrabas sat í fangelsi fyrir vekja uppþot í Jerúsalem gegn yfirvöldunum og fyrir manndráp.) 20 Pílatus reyndi sannfæra þá, því hann vildi sleppa Jesú 21 en þeir hrópuðu á móti: Krossfestu hann! Krossfestu hann!"

22 Enn einu sinni í þriðja sinn spurði Pílatus ákveðinn: Hvers vegna? Hvaða glæp hefur hann drýgt? Ég enga ástæðu til dæma hann til dauða. Ég ætla því láta húðstrýkja hann og sleppa honum síðan." 23 Þá heimtuðu þeir aftur Jesús yrði krossfestur og urðu hróp þeirra svo hávær þau yfirgnæfðu allt annað.

24 Þá dæmdi Pílatus Jesú til dauða, eins og fólkið krafðist, 25 en sleppti Barrabasi samkvæmt ósk þess manninum sem sat í fangelsi fyrir óeirðir og manndráp. Síðan afhenti hann þeim Jesú, svo þeir gætu gert við hann það sem þeir vildu.

26 Þegar hópurinn var lagður af stað með Jesú til aftökustaðarins, var maður sem var koma utan úr sveit, Símon frá Kýrene, þvingaður til bera kross hans. 27 Mikill mannfjöldi fylgdi á eftir, þar á meðal margar grátandi konur.

28 Jesús sneri sér við og sagði við þær: Jerúsalemdætur, þið skuluð ekki gráta mín vegna, heldur vegna ykkar sjálfra og barna ykkar. 29 Þeir dagar munu koma er barnlausar konur verða taldar heppnar. 30 Þá munu menn biðja fjöllin um hrynja yfir sig og hæðirnar hylja sig, 31 því ef þetta er gert við mig, hið lifandi tré, hvernig mun þá fara fyrir ykkur."

Jesús deyr á krossi

32,33 Ásamt Jesú voru tveir afbrotamenn leiddir til aftökustaðarins sem hét Hauskúpa". Þar voru þeir allir krossfestir, Jesús í miðið, en hinir tveir sinn til hvorrar handar.

34 Þá sagði Jesús: Faðir, fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gera."

Hermennirnir köstuðu hlutkesti um föt Jesú, eina flík í senn. 35 Fólkið stóð og fylgdist með, en leiðtogar þjóðarinnar gerðu gys honum og sögðu: Hann gat hjálpað öðrum, en ætti hann hjálpa sjálfum sér og sanna með því hann í raun og veru Kristur, útvalinn konungur Guðs."

36 Hermennirnir hæddu hann líka með því rétta honum súrt vín drekka. 37 Þeir hrópuðu: Ef þú ert konungur Gyðinga, bjargaðu þá sjálfum þér."

38 Fyrir ofan hann var neglt spjald á krossinn. Þar stóð: Þessi er konungur Gyðinga." 39 Annar afbrotamannanna, sem hékk við hlið hans, sendi honum háðsglósu og sagði: Svo þú ert Kristur, er það ekki? Sannaðu það þá með því bjarga sjálfum þér og okkur."

40,41 Hinn glæpamaðurinn mótmælti þeim fyrri og sagði: Óttastu ekki einu sinni Guð á dauðastundinni? Við höfum unnið til þessarar þungu refsingar, en þessi maður hefur ekkert rangt aðhafst." 42 Síðan sneri hann sér Jesú og sagði: Jesú, minnstu mín þegar þú kemur í ríki þitt."

43 Jesús svaraði: Ég lofa þér því, í dag skaltu vera með mér í Paradís."

44 var komið hádegi, en þá varð dimmt um allt landið fram til klukkan þrjú, 45 því sólin myrkvaðist. Þá gerðist það fortjaldið í musterinu rifnaði í tvennt.

46 Þá hrópaði Jesús: Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn," og svo mæltu hann.

47 Þegar rómverski herforinginn, sem stjórnaði aftökunum, hvað gerðist, varð hann hræddur og sagði: Ég er viss um þessi maður hefur verið saklaus."

48 Þegar fólkið, sem kom til fylgjast með krossfestingunni, Jesús var dáinn, fór það heim harmi slegið. 49 Meðan þetta gerðist, stóðu vinir Jesú og konurnar, sem fylgt höfðu honum frá Galíleu, álengdar og fylgdust með.

Jesús lagður í gröf

50-52 Maður nokkur frá Arímaþeu, Jósef nafni, kunnur ráðherra, fór til Pílatusar og bað um líkama Jesú. Hann var guðrækinn maður, sem vænti komu Krists og hafði verið ósammála hinum um hvað gera skyldi við Jesú. 53 Hann tók því líkama Jesú niður af krossinum og vafði í léreftsdúk og lagði síðan í nýja gröf sem höggvin hafði verið í klett. 54 Þetta gerðist síðdegis á föstudegi, aðfangadegi páska, á sama tíma og fólk var undirbúa hátíðina.

55 Konurnar sáu er líkaminn var tekinn niður og fylgdust með þegar hann var lagður í gröfina. 56 Síðan fóru þær heim og tilreiddu kryddjurtir og smyrsl til smyrja hann með.

Í þann mund er þær höfðu lokið verki sínu, gekk hátíðin í garð. Þær héldu kyrru fyrir það kvöld og næsta dag, eins og krafist var í lögunum.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-