16 Hann kom á æskustöðvar sínar í Nasaret og fór á helgideginum í samkomuhúsið, eins og hann var vanur, og stóð upp til að lesa úr Biblíunni. 17 Honum var fengin bók Jesaja spámanns. Hann opnaði hana og las:
18,19 „Andi Drottins er yfir mér. Hann hefur valið mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap. Hann hefur sent mig til að boða fjötruðum frelsi, gefa blindum sýn, leysa hina undirokuðu frá áþján og boða að Guð sé fús að hjálpa öllum sem til hans koma."
20 Hann lokaði bókinni og rétti þjóninum. Síðan settist hann niður. Allir störðu á hann fullir eftirvæntingar. 21 Hann tók til máls og sagði: „Þessi ritningargrein, sem þið hafið nú heyrt, hefur ræst í dag."