25,26 Þið munið til dæmis að spámaðurinn Elía gerði kraftaverk til að hjálpa ekkjunni í Sarepta, en hún var útlendingur og bjó í landi Sídonar. Það hafði ekkert rignt í þrjú og hálft ár og mikið hungur var í öllu landinu. Margar Gyðingaekkjur þörfnuðust hjálpar, en þó var Elía ekki sendur til neinnar þeirra.