38 Þegar Jesús yfirgaf samkomuhúsið fór hann heim til Símonar. Þá var tengdamóðir Símonar þar rúmliggjandi með háan hita. Allir viðstaddir báðu Jesú að lækna hana. 39 Jesús gekk að rúmstokknum og hastaði á sótthitann, sem þá hvarf skyndilega, og hún fór á fætur og matreiddi handa þeim.