Publicidade

Lucas 4

Satan freistar Jesú

1 Jesús fylltist heilögum anda, sem leiddi hann frá ánni Jórdan og út í auðnir Júdeu. 2 Þar var hann í fjörutíu daga matarlaus og hungrið svarf . 3 Þá freistaði Satan hans og sagði: Ef þú ert sonur Guðs, þá segðu þessum steini verða brauði."

4 Jesús svaraði: Biblían segir: Maðurinn lifir ekki bara á brauði." "

5 Þá tók Satan hann með sér og sýndi honum á augabragði öll ríki heimsins 6,7 og sagði: Öll þessi ríki og dýrð þeirra er mín eign og ég get ráðstafað þeim vild. Þetta skal allt verða þitt, ef þú fellur fram og tilbiður mig."

8 En Jesús svaraði: Í Biblíunni stendur: Drottin Guð þinn átt þú tilbiðja og þjóna honum einum." "

9-11 Þá fór Satan með hann upp til Jerúsalem og alla leið upp á þakbrún musterisins og sagði: Ef þú ert sonur Guðs, stökktu þá fram af! Segir Biblían ekki Guð muni senda engla sína til gæta þín og vernda þig, svo þú merjist ekki á stéttinni fyrir neðan?"

12 Jesús svaraði: Þetta stendur einnig í Biblíunni: Ekki skaltu freista Drottins Guðs þíns." "

13 Þegar djöfullinn hafði lokið freistingum sínum, fór hann burt og yfirgaf Jesú sinni.

Jesús hefur starf sitt

14 Eftir þetta sneri Jesús aftur til Galíleu, fylltur heilögum anda, og orðrómurinn um hann barst út um öll héruðin þar í grennd. 15 Hann predikaði í samkomuhúsunum og allir lofuðu hann.

16 Hann kom á æskustöðvar sínar í Nasaret og fór á helgideginum í samkomuhúsið, eins og hann var vanur, og stóð upp til lesa úr Biblíunni. 17 Honum var fengin bók Jesaja spámanns. Hann opnaði hana og las:

18,19 Andi Drottins er yfir mér. Hann hefur valið mig til flytja fátækum gleðilegan boðskap. Hann hefur sent mig til boða fjötruðum frelsi, gefa blindum sýn, leysa hina undirokuðu frá áþján og boða Guð fús hjálpa öllum sem til hans koma."

20 Hann lokaði bókinni og rétti þjóninum. Síðan settist hann niður. Allir störðu á hann fullir eftirvæntingar. 21 Hann tók til máls og sagði: Þessi ritningargrein, sem þið hafið heyrt, hefur ræst í dag."

22 Fólkið lét ánægju sína í ljós og undraðist þau ljúfu orð sem komu af vörum hans. Hver er skýringin á þessu," spurðu menn, er þetta ekki sonur Jósefs?"

23 Þá sagði Jesús: Þið minnið mig sjálfsagt á máltækið: Læknir, læknaðu sjálfan þig" og eigið þá við: Af hverju gerirðu ekki svipuð kraftaverk hér í heimabæ þínum og þú hefur gert í Kapernaum?" 24 Ég segi ykkur satt: Enginn spámaður er viðurkenndur í heimabæ sínum! 25,26 Þið munið til dæmis spámaðurinn Elía gerði kraftaverk til hjálpa ekkjunni í Sarepta, en hún var útlendingur og bjó í landi Sídonar. Það hafði ekkert rignt í þrjú og hálft ár og mikið hungur var í öllu landinu. Margar Gyðingaekkjur þörfnuðust hjálpar, en þó var Elía ekki sendur til neinnar þeirra. 27 Og munið þið eftir spámanninum Elísa? Hann læknaði Naaman frá Sýrlandi, en ekki þá mörgu Gyðinga sem voru holdsveikir og þörfnuðust hjálpar."

28 Við þessi orð Jesú urðu menn æfir af reiði. 29 Þeir stukku úr sætum sínum, þyrptust honum og hröktu hann út á brún fjallsins, sem bærinn stóð á, með það í huga hrinda honum fram af þverhnípinu. 30 En Jesús gekk út úr þvögunni og yfirgaf þá.

31 Eftir þetta fór hann til Kapernaum, bæjar í Galíleu, og þar predikaði hann í samkomuhúsinu á hverjum helgidegi. 32 Hér fór á sömu leið, fólkið undraðist það sem hann sagði, því máttur fylgdi orðum hans.

33 Eitt sinn, er Jesús var kenna í samkomuhúsinu, fór maður, sem hafði illan anda, hrópa honum: 34 Farðu burt! Við viljum ekkert með þig hafa, Jesús frá Nasaret. Þú ert kominn til granda okkur. Ég veit þú ert hinn heilagi sonur Guðs."

35 Þá greip Jesús fram í fyrir illa andanum og sagði skipandi: Hafðu hljótt um þig og farðu út." Andinn fleygði þá manninum í gólfið í augsýn allra og yfirgaf hann án þess valda honum tjóni.

36 Fólkið varð forviða og spurði: Hvaða vald býr í orðum þessa manns, fyrst illu andarnir hlýða honum!" 37 Fréttin um þetta breiddist eins og eldur í sinu um allt héraðið.

38 Þegar Jesús yfirgaf samkomuhúsið fór hann heim til Símonar. Þá var tengdamóðir Símonar þar rúmliggjandi með háan hita. Allir viðstaddir báðu Jesú lækna hana. 39 Jesús gekk rúmstokknum og hastaði á sótthitann, sem þá hvarf skyndilega, og hún fór á fætur og matreiddi handa þeim.

40 Við sólarlag þetta kvöld komu þorpsbúar með sjúklinga til Jesú. Það skipti ekki máli hver sjúkdómurinn var, þegar Jesús snerti þá læknuðust þeir. 41 Sumir höfðu illa anda sem fóru út skipun hans. Andar þessir æptu: Þú ert sonur Guðs!" Þeir vissu hann var Kristur, en hann þaggaði niður í þeim og leyfði þeim ekki tala.

42 Við sólarupprás morguninn eftir, lagði hann leið sína á óbyggðan stað. Mannfjöldinn leitaði hans um allt og fann hann loks. Fólkið bað hann fara ekki burt frá Kapernaum, 43 en því svaraði hann: Ég verð líka fara á fleiri staði og flytja þar gleðifréttirnar um Guð nálægur með vald sitt og hjálp, því til þess var ég sendur." 44 Síðan hélt hann áfram ferð sinni og predikaði í samkomuhúsunum í Júdeu.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-