Margir læknast
12 Svo bar við, er Jesús var staddur í einu þorpinu, að hann mætti manni sem þjáðist af holdsveiki. Þegar maðurinn sá Jesú, fleygði hann sér í götuna fyrir framan hann og grátbað hann að lækna sig.
„Herra, þú getur læknað mig ef þú vilt," sagði hann. 13 Jesús rétti út höndina, snerti manninn og sagði: „Ég vil að þú verðir heilbrigður." Um leið hvarf holdsveikin!