33 Það næsta sem þeim fannst þeir þurfa að gera athugasemd við, var að lærisveinarnir væru í veislu í stað þess að fasta. „Lærisveinar Jóhannesar skírara fasta oft og biðja," sögðu þeir, „einnig lærisveinar faríseanna, en af hverju eru þínir alltaf étandi og drekkandi?"
34 „Segið mér eitt, fasta menn þegar þeir halda hátíð?" sagði Jesús. „Er veislumatnum sleppt í brúðkaupsveislum? 35 Sá tími mun hins vegar koma er brúðguminn verður tekinn og líflátinn og þá mun þá ekki langa í mat."