11 Stuttu seinna fóru Jesús og lærisveinar hans til þorpsins Nain, og enn fylgdi mannfjöldinn. 12 Þegar hann nálgaðist þorpshliðið, kom þar að líkfylgd. Hinn dáni var drengur, einkasonur móður sinnar sem var ekkja. Hópur syrgjandi þorpsbúa var í líkfylgdinni ásamt ekkjunni. 13 Þegar Drottinn sá hana, kenndi hann í brjósti um hana og sagði: „Gráttu ekki." 14 Síðan gekk hann að líkbörunum og snerti þær. Þeir sem báru, námu staðar og Jesús sagði: „Ungi maður, ég segi þér: Rístu upp!"
15 Þá settist drengurinn upp og fór að tala við viðstadda! En Jesús gaf hann aftur móður hans. 16 Mikil hræðsla greip um sig og fólkið lofaði Guð og hrópaði: „Voldugur spámaður er kominn fram á meðal okkar. Við höfum sannarlega séð Guð að verki í dag." 17 Og fréttin flaug um nágrennið og landið allt.