24 Þegar þeir voru farnir, talaði Jesús við fólkið um Jóhannes og sagði: „Hver er hann, þessi maður, sem þið fóruð að sjá út í Júdeuauðninni? Fannst ykkur hann veikburða líkt og strá sem bærist í golunni? 25 Var hann klæddur sem ríkmenni? Nei! Menn, sem lifa munaðarlífi, búa í höllum en ekki í eyðimörkum. 26 Hvað funduð þið þá? Spámann? Já, og meira en það! 27 Biblían segir um hann: „Sjá, ég sendi boðbera minn á undan þér til að undirbúa komu þína." 28 Jóhannes er mestur allra manna, en samt er hinn minnsti þegn í guðsríki honum meiri."
29 Allir sem hlustuðu á Jóhannes – jafnvel þeir sem dýpst voru sokknir í synd – beygðu sig að kröfu Guðs og létu skírast.
30 En farísearnir og lögvitringarnir höfnuðu áformi Guðs um þá og vildu ekki láta skírast.