31 „Við hvað á ég að líkja slíkum mönnum?" spurði Jesús. 32 „Þeir eru eins og börn sem kalla hvert til annars: „Við fórum í brúðkaupsleik en þið vilduð ekki vera með, þá fórum við í jarðarfararleik en þið vilduð samt ekki vera með." 33 Jóhannes fastaði oft og bragðaði aldrei áfengi, en þá sögðu menn: „Hann hlýtur að vera skrýtinn." 34 En þegar ég borða og drekk eins og aðrir, þá er sagt: „Þessi Jesús, hann er nú meira átvaglið og hann drekkur meira að segja líka! Og vinir hans, það er ljóta hyskið." 35 Alltaf finnið þið eitthvað til að afsaka ykkur með."
Óvenjulegt hádegisverðarboð
36 Einn af faríseunum bauð Jesú til máltíðar heima hjá sér og hann þáði boðið. Þeir voru ný sestir að matnum 37 þegar kona nokkur kom inn utan af götunni. Hún var skækja sem hafði frétt að Jesús væri þarna og kom því með flösku af dýrindis ilmolíu.