2 Með í förinni voru postularnir tólf, og einnig nokkrar konur, sem hann hafði rekið illa anda út af eða læknað. Þeirra á meðal voru María Magdalena (en út af henni hafði Jesús rekið sjö illa anda), 3 Jóhanna (kona Kúsa, sem var ráðsmaður Heródesar konungs og hafði umsjón með höll hans og hirð), Súsanna og margar aðrar. Veittu þær Jesú og lærisveinum hans fjárhagslegan stuðning.