41 Þá kom þar að maður, Jaírus að nafni, stjórnandi samkomuhússins. Hann kraup að fótum Jesú og grátbað hann að koma heim með sér. 42 Einkadóttir hans, tólf ára gömul, lá fyrir dauðanum. Jesús fór með honum og þeir ruddu sér leið gegnum mannþröngina.