43,44 Á leiðinni gerðist það að kona ein, sem hafði innvortis blæðingar, kom að baki Jesú og snart hann. Hún hafði ekki fengið neina bót á meini sínu fram að þessu, þótt hún hefði eytt nær aleigu sinni í lækna. En jafnskjótt og hún snart faldinn á yfirhöfn Jesú stöðvuðust blæðingarnar.
45 „Hver kom við mig?" spurði Jesús.
Þegar enginn gaf sig fram, sagði Pétur: „Meistari, hér er fullt af fólki sem þrengir að þér á allar hliðar."
46 „Nei, einhver snart mig af ásettu ráði, því ég fann lækningakraft streyma út frá mér." sagði Jesús.
47 Þegar konan sá að Jesús hafði orðið var við þetta, kom hún skjálfandi og kraup við fætur hans. Síðan útskýrði hún hvernig í öllu lá og sagði að nú væri hún orðin heilbrigð.
48 „Dóttir, trú þín hefur læknað þig. Farðu í friði," sagði Jesús.