49 Meðan hann var að tala við konuna, kom maður heiman frá Jaírusi með þær fréttir að litla stúlkan væri dáin. „Hún er skilin við," sagði maðurinn við föður hennar, „það er óþarfi að ónáða meistarann lengur."
50 Þegar Jesús heyrði þetta, sagði hann við föður stúlkunnar: „Vertu ekki hræddur. Trúðu aðeins, og hún verður heilbrigð."
51 Þegar Jesús kom að húsinu, leyfði hann engum að fara inn með sér nema Pétri, Jakobi og Jóhannesi, auk foreldra stúlkunnar. 52 Inni í húsinu var margt syrgjandi fólk, sem grét hástöfum. „Hættið að gráta!" sagði Jesús, „hún er ekki dáin heldur sefur hún." 53 Þá kváðu við háðsglósur frá fólkinu, því allir vissu að stúlkan var dáin.
54 En Jesús tók í hönd stúlkunnar og kallaði: „Stúlka litla, rístu upp!" 55,56 Á sama andartaki lifnaði hún við og reis upp í rúminu! „Gefðu henni eitthvað að borða," sagði Jesús við foreldrana sem voru frá sér numdir af gleði. Hann bað þau að segja engum hvernig þetta hefði gerst.