1 Dag nokkurn kallaði Jesús lærisveinana tólf til sín og gaf þeim vald yfir öllum illum öndum – til að reka þá út – og til að lækna sjúkdóma. 2 Síðan sendi hann þá af stað til að predika og lækna. 3 „Takið ekkert til ferðarinnar," sagði hann, „hvorki staf né mat, fé né föt, 4 og gistið aðeins á einu heimili í hverjum bæ fyrir sig.
5 Vilji fólkið í þeim bæ ekki hlusta á ykkur þegar þið komið, þá snúið við og gefið í skyn vanþóknun Guðs með því að dusta rykið af fótum ykkar um leið og þið farið."
6 Þeir lögðu af stað og ferðuðust um þorpin, fluttu gleðiboðskapinn og læknuðu sjúka.