Pular para o conteúdo
Publicidade

Lucas 9

12 Þegar leið kvöldi, komu lærisveinarnir tólf til hans og hvöttu hann til senda fólkið til nálægra þorpa og bóndabæja, svo það gæti náð sér í mat og húsaskjól fyrir nóttina. Hér í óbyggðinni er engan mat ," sögðu þeir.

13 Gefið þið því borða," sagði Jesús.

Ha, við?" andmæltu þeir, við höfum aðeins fimm brauð og tvo fiska og það er ekkert handa öllu þessu fólki. Viltu við förum og kaupum mat handa öllum hópnum?" 14 Karlmennirnir einir vora um fimm þúsund!

Segið þeim setjast niður í fimmtíu manna hópum," svaraði Jesús, 15 og það var gert.

16 Jesús tók þá brauðin fimm og fiskana, leit upp til himins og þakkaði. Síðan braut hann brauðin í smástykki og rétti lærisveinunum, en þeir báru matinn til fólksins. 17 Fólkið borðaði vel, en þrátt fyrir það fylltu þeir tólf körfur með brauðmolum máltíðinni lokinni!

Veja também