38 Maður einn í hópnum hrópaði þá til hans og sagði: „Meistari, viltu líta á drenginn minn, hann er einkasonur minn. 39 Illur andi er sífellt að ná tökum á honum, svo að hann æpir, fær krampa og froðufellir. Hann lætur hann eiginlega aldrei í friði og er alveg að gera út af við hann. 40 Ég bað lærisveina þína að reka andann út, en þeir gátu það ekki."
41 „Æ, hvað þið eigið erfitt með að trúa," sagði Jesús (við lærisveinana), „hversu lengi þarf ég að umbera ykkur? Komið hingað með drenginn."
42 Meðan drengurinn var á leiðinni til Jesú, fleygði illi andinn honum til jarðar og hann fékk hræðilegt krampakast. Þá skipaði Jesús andanum að fara, hann læknaði drenginn og afhenti föður hans hann.
43 Allir urðu forviða á mætti Guðs. En á meðan fólkið var að undrast verk Jesú, sneri hann sér að lærisveinunum og sagði: