57 Á leiðinni sagði maður nokkur við Jesú: „Ég vil fylgja þér hvert sem þú ferð."
58 Jesús svaraði: „Refir eiga greni og fuglarnir hreiður en ég, Kristur, á engan samastað."
59 Við annan mann sagði Jesús: „Fylg þú mér!" Maðurinn tók því vel og sagði: „Leyfðu mér samt að annast útför föður míns fyrst." 60 Þessu svaraði Jesús: „Láttu þá sem ekki eiga eilíft líf um það, en far þú og boða guðsríki."
61 Enn annar sagði: „Drottinn, ég vil fylgja þér, en leyfðu mér samt fyrst að kveðja þá sem heima eru." 62 „Sá sem lætur leiða sig burt frá því verki, sem ég ætlaði honum," svaraði Jesús, „er ekki hæfur í guðsríki."