Agradecimento a Deus
Agradecer a Deus é louvor, adoração e reconhecimento da sua soberania. Dai graças ao Senhor porque Ele é bom — a sua misericórdia dura para sempre!
Komum fram fyrir hann með þakkargjörð, syngjum honum lofgjörðarsálm.
Gangið inn um hlið hans með þakkargjörð, í forgarða hans með lofsöng. Þakkið honum, lofið nafn hans.
Hallelúja! Drottinn, þökk sé þér því að þú ert góður! Elska þín varir að eilífu.
Drottinn er ljósið sem lýsir okkur. Dansið fyrir honum, já, alla leiðina að altari hans. Hann er minn Guð, ég þakka honum og lofa hann.
Syngið honum þakkarljóð, lofið Guð með hörpuleik.
Ó, Guð, frelsaðu mig úr þessari neyð! Ég veit að þú munt bjarga mér!
Hann er styrkur minn, skjól mitt gegn öllum árásum. Honum treysti ég og hann hjálpaði mér. Gleðin svellur í brjósti mér og brýst út í lofgjörð til hans!
Hafið ekki áhyggjur af neinu. Segið Guði frá öllum þörfum ykkar og gleymið ekki að þakka honum, því að hann svarar bænum.
Ég lofa Guð í hvert sinn sem ég bið fyrir ykkur.
Hvað sem þið gerið eða segið, þá gerið allt vegna Drottins Jesú og þakkið Guði föður fyrir hann.
Mikið erum við þakklátir Guði fyrir ykkur. Og við biðjum fyrir ykkur. Þegar við tölum við Guð föður okkar, þá minnumst við kærleiksverka ykkar, sterkrar trúar og hve óhagganleg þið eruð í voninni um endurkomu Drottins Jesú Krists.
Ég get ekki látið af að þakka Guði fyrir alla þá náð sem hann hefur gefið ykkur í Jesú Kristi.
Þökkum Guði fyrir allt þetta. Það er Guð sem gefur okkur sigurinn fyrir Drottin, Jesú Krist.
Þökk sé Guði fyrir sigur hans í Kristi og að hann skuli hafa leyft okkur að taka þátt í sigurgöngu hans, og segja öðrum frá honum. Boðskapurinn um hann berst eins og sætur reykelsisilmur út um allan heiminn.
Guð, sem gefur bóndanum útsæði og síðan góða uppskeru honum til framfæris, mun einnig gefa ykkur útsæði og margfalda uppskeru, svo að þið getið gefið æ meira. Hann mun gefa ykkur mikið til þess að þið getið verið rausnarleg við aðra. Þegar við afhendum gjöf ykkar þeim sem hana eiga að fá, þá mun streyma fram lofgjörð og þökk til Guðs fyrir hjálp hans.
Ræðið saman um Drottin, vitnið í sálma og söngva, syngið andlega söngva. Syngið og leikið Drottni lof í hjörtum ykkar og þakkið Guði föður fyrir alla hluti í nafni Drottins Jesú Krists.
Verið hvert öðru undirgefin, slíkt hugarfar er Drottni velþóknanlegt.
Hann tók nú brauðin fimm og fiskana, horfði upp til himins og þakkaði Guði. Síðan braut hann brauðin og rétti lærisveinunum þau ásamt fiskunum og sagði þeim að bera það til fólksins. Og allir urðu mettir, en karlmennirnir einir voru um fimm þúsund, auk kvenna og barna. Að máltíðinni lokinni var afganginum safnað úr grasinu og fyllti hann tólf körfur!