Publicidade

Salmos 106

1 Hallelúja! Drottinn, þökk þér því þú ert góður! Elska þín varir eilífu. 2 Hver getur talið upp öll máttarverk Guðs og hver getur lofað hann eins og rétt er og skylt? Enginn!

3 Sæll er réttláti sem gerir nágrönnum sínum gott.

4 Drottinn, þegar þú blessar og bjargar fólki þínu, minnstu þá einnig mín. 5 Gefðu mér hlut í velgengni þinna útvöldu, gleðjast með þeim og deila með þeim hjálp þinni.

6 Bæði við og feður okkar höfum margvíslega syndgað. 7 Máttarverk þín í Egyptalandi mátu þeir lítils og fljótlega gleymdu þeir góðverkum þínum og risu gegn þér við hafið hið rauða. 8 En samt frelsaðir þú þá, hélst uppi heiðri nafns þíns og sýndir mátt þinn. 9 Þú klaufst hafið, lagðir þurran veg um botn þess og leiddir þá þar í gegn. 10 Þannig frelsaðir þú þá frá óvinum þeirra. 11 Síðan féll sjórinn aftur í farveg sinn og óvinir þeirra fórust ekki einn komst af!

12 Þá loks trúðu þeir Drottni og sungu honum lofsöng.

13 En þeir voru fljótir gleyma honum á ! Þeir treystu ekki orðum hans 14 en heimtuðu sífellt meira og meira og reyndu eins og þeir gátu á þolinmæði Guðs. 15 Og hann lét vilja þeirra, en þó ekki öllu leyti. 16 Þeir gerðu uppreisn gegn Móse og líka Aron, manninn sem Guð hafði valið til prests. 17 Þá opnaðist jörðin og gleypti Datan og flokk Abírams. 18 Eldur féll af himni og eyddi illmennum þessum.

19,20 Þeir gerðu sér líkneski af nauti, sem étur gras, og tilbáðu það í stað hins dýrlega Guðs! 21,22 Þannig óvirtu þeir Guð, frelsara sinn, sem gert hafði undur og tákn í Egyptalandi og við hafið rauða. 23 Þess vegna áformaði Guð eyða þeim öllum. En Móse, hans útvaldi þjónn, tók sér stöðu milli fólksins og Guðs og bað hann láta af reiði sinni og tortíma þeim ekki.

24 Og ekki vildu þeir inn í fyrirheitna landið, þeir treystu ekki Guð mundi vernda þá. 25 Þeir kvörtuðu í tjöldum sínum og fyrirlitu skipun hans. 26 Þá ákvað hann láta þá deyja í eyðimörkinni, 27 tvístra afkomendum þeirra meðal þjóðanna og herleiða þá til annarra landa. 28 Og hjá Peór gengu forfeður okkar í lið með fylgjendum Baals og báru fram fórnir til dauðra skurðgoða. 29 Það reitti Drottin til reiði og þess vegna braust út plága meðal þeirra. 30 Hún hélst þar til Pínehas gekk fram og refsaði þeim sem henni höfðu valdið. 31 Hans verður ætíð minnst fyrir það réttlætisverk.

32 Hjá Meríba reitti Ísrael Drottin aftur til reiði og olli Móse miklum vanda, 33 hann reiddist og talaði ógætileg orð. 34 Og ekki útrýmdi Ísrael þjóðunum sem fyrir voru í landinu, eins og Guð hafði skipað þeim, 35 heldur blönduðust þeir heiðingjunum og tóku upp ósiði þeirra. 36 Þeir færðu skurðgoðum þeirra fórnir og leiddust burt frá Guði. 37,38 Þeir fórnuðu jafnvel börnum sínum til illra anda til hjáguða Kanverja úthelltu saklausu blóði og vanhelguðu landið með morðum. 39 Þeir saurguðust af illverkum þessum, því með hjáguðadýrkun sinni rufu þeir trúnað við Guð. 40 Vegna alls þessa reiddist Drottinn Ísrael, lýð sínum, og fékk viðbjóð á honum, 41,42 og lét hann heiðnar þjóðir drottna yfir honum. Ísrael var stjórnað af óvinum sínum og þeir kúguðu hann.

43 Aftur og aftur leysti hann þá undan okinu, en þeir héldu áfram óhlýðnast honum, uns syndir þeirra komu þeim á kné.

44 Samt bænheyrði hann þá og linaði þjáningar þeirra. 45 Hann minntist loforðsins sem hann gaf þeim og aumkaðist yfir þá í elsku sinni, 46 svo jafnvel þeir sem kúguðu þá, sýndu þeim miskunn.

47 Ó, frelsaðu okkur, Drottinn Guð! Safnaðu okkur saman frá þjóðunum svo við getum sameiginlega þakkað þér og lofað nafn þitt.

48 Lofaður Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Og allt fólkið segi: Amen!" Hallelúja.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-