Amor ao próximo
O amor ao próximo não é opcional — é mandamento. Amarás o teu próximo como a ti mesmo. A lei inteira se cumpre nesta palavra. O amor ao próximo é prova do amor a Deus.
Sagt hefur verið: „Elskaðu vini þína og hataðu óvini þína." En ég segi: Elskið óvini ykkar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja ykkur.
Ég krefst þess af ykkur að þið elskið hver annan jafn innilega og ég elska ykkur.
Skuldið engum neitt, nema það eitt að elska hver annan og látið ekki dragast að greiða afborganir af þeirri skuld! Með því að elska aðra, þá hlýðir þú öllum lögum Guðs og uppfyllir kröfur hans.
Við ættum því að þóknast hinum en ekki sjálfum okkur og gera það sem þeim er fyrir bestu og efla þá þannig í Drottni.
og látið kærleikann leiða ykkur í öllu.
Auk þess bið ég Drottin að kærleikur ykkar hvers til annars og til allra, aukist æ meir, eins og kærleikurinn sem við berum til ykkar.
Haldið áfram að elska hvert annað með fórnfúsum kærleika. Gleymið ekki gestrisninni því að sumir hafa, óafvitandi, tekið á móti englum. Gleymið ekki föngunum, heldur takið þátt í þjáningum þeirra eins og þið sjálf væruð í þeirra sporum. Samhryggist þeim sem illt þola, því að sjálf hafið þið líkama.
Vissulega er gott að þið hlýðið þannig þessari skipun Drottins: „Elskið og hjálpið meðbræðrum ykkar eins og þið elskið og annist ykkur sjálfa,"
En umfram allt berið brennandi kærleika hvert til annars, því að kærleikurinn getur breitt yfir margt sem miður fer.
Fyrst Guð hefur elskað ykkur svo heitt og útvalið, þá ættuð þið að kappkosta að sýna öllum góðvild og miskunnsemi. Reynið ekki að þykjast öðrum fremri, heldur verið fús að þola mótlæti með þögn og þolinmæði. Verið hógvær og fljót að fyrirgefa og berið ekki kala til nokkurs manns. Minnist þess að Drottinn hefur fyrirgefið ykkur og því verðið þið einnig að fyrirgefa öðrum.
En umfram allt, látið kærleikann ráða í lífi ykkar, því að þá verður fullkomið samstarf og eining í söfnuðinum. Látið frið Krists búa í hjörtum ykkar, það er skylda ykkar og jafnframt forréttindi sem hluta af líkama hans. Verið þakklát.
því að boðskapurinn sem við fengum í upphafi, var sá að við ættum að elska hvert annað.
Sá sem hatar meðbróður sinn er í raun og veru morðingi og sá sem hyggur á morð, getur ekki átt eilíft líf. Við vitum að sannur kærleikur birtist í því að Kristur dó fyrir okkur, við ættum því einnig að fórna lífi okkar fyrir meðbræðurna.
Við vitum að sannur kærleikur birtist í því að Kristur dó fyrir okkur, við ættum því einnig að fórna lífi okkar fyrir meðbræðurna.
Kæru vinir, elskum hvert annað, því kærleikurinn er frá Guði. Þeir sem iðka kærleika og umhyggju, sýna að þeir eru börn Guðs og þekking þeirra á honum fer vaxandi. Sá sem ekki sýnir kærleika, þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur.