Dia das crianças
As crianças são preciosas aos olhos de Deus. Jesus as acolheu, abençoou e ensinou que delas é o Reino dos Céus — modelos de fé, pureza e humildade.
Jesus e as crianças
Deixai vir a mim as crianças. Jesus abraçou, abençoou e honrou as crianças como modelo de fé para os adultos.
En Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því slíkra er guðsríki."
Hver er mestur
Rétt í þessu komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann hver þeirra yrði mestur í ríki himnanna. Jesús kallaði þá á lítið barn sem stóð þar hjá og sagði: „Ef þið snúið ykkur ekki frá syndinni, til Guðs, og verðið eins og börnin, munuð þið aldrei komast inn í himnaríki. Sá sem er auðmjúkur, eins og þetta litla barn, verður mestur í himnaríki.
Dæmisagan um týnda sauðinn
Gætið þess að fyrirlíta ekki neitt þessara barna. Ég segi ykkur satt: Englar þeirra eru í nánum tengslum við föður minn á himnum,
Þegar æðstu prestarnir og leiðtogarnir sáu þessi dásamlegu kraftaverk og heyrðu börnin hrópa í musterinu: „Guð blessi son Davíðs!" urðu þeir gramir og sögðu við hann: „Heyrirðu hvað börnin segja?"
„Já," svaraði Jesús, „hafið þið aldrei lesið þetta: „Jafnvel börnin munu lofa hann." "
Ég legg á það áherslu að sá, sem ekki vill koma til Guðs eins og lítið barn, mun aldrei komast inn í ríki hans." Síðan tók hann börnin í fang sér, lagði hendur yfir þau og blessaði.
Síðan kallaði hann á lítið barn og setti það á meðal þeirra. Að því búnu tók hann það í fang sér og sagði: „Hver sá sem tekur á móti litlu barni eins og þessu, mín vegna, tekur á móti mér, og hver sá sem tekur á móti mér, tekur á móti föður mínum sem sendi mig."
Instruir e proteger
Instrui a criança no caminho de Deus. Elas são herança do Senhor — presentes sagrados que devemos educar com amor.
Börnin eru gjöf frá Guði, ávöxtur móðurkviðar og laun frá Drottni.
Börn! Hlýðið foreldrum ykkar í öllu, því það hæfir þeim sem tilheyra Drottni. Og þið foreldrar, verið ekki harðir við börn ykkar, því þá missa þau sjálfstraust og fyllast vanmáttarkennd.
Þið börn, hlýðið foreldrum ykkar! Það skuluð þið gera, því að Guð hefur falið þeim að bera ábyrgð á ykkur. „Heiðra skaltu föður þinn og móður." Þetta er fyrsta boðorðið af hinum tíu boðorðum Guðs sem endar á loforði. Hvert er þá loforðið? Það er þetta: „Þá muntu lifa langa og blessunarríka ævi."
Foreldrar, hér eru nokkur orð til ykkar. Venjið ykkur ekki á að skamma börn ykkar og jagast í þeim, því þá verða þau afundin og bitur. Alið þau heldur upp í kærleika og með aga, á sama hátt og Drottinn, og þá með ábendingum og góðum ráðum.