Espírito
O espírito humano é a parte mais profunda do nosso ser — onde Deus habita, onde a fé se ancora e de onde brota a verdadeira adoração. A Bíblia nos chama a viver pelo Espírito.
A natureza do espírito
O espírito está pronto, mas a carne é fraca. A batalha entre carne e espírito é constante e exige vigilância.
Vakið og biðjið, til þess að þið fallið ekki í freistni. Andinn er fús, en holdið er veikt!"
„Sælir eru auðmjúkir, því að þeirra er himnaríki.
Það er í eðli okkar að gera hið illa, einmitt það sem heilagur andi segir okkur að láta ógert. Sama er að segja um hið góða sem heilagur andi kemur til leiðar, þegar hann fær rúm í lífi okkar, það stendur í gegn okkar illa eðli. Þessi tvö öfl innra með okkur eiga í stöðugri baráttu um yfirráð yfir okkur og þau munu aldrei láta okkur afskiptalaus.
Ég hvet ykkur til að hlýða aðeins því sem heilagur andi segir ykkur. Hann mun segja ykkur hvert þið eigið að fara og hvað þið eigið að gera, og þá munuð þið ekki lengur hlýðnast sjálfselskunni.
Ef hins vegar heilagur andi stjórnar lífi okkar, þá skapar hann eftirfarandi ávexti í okkur: Kærleika, gleði, frið, þolinmæði, gæsku, góðvild, trúmennsku, hógværð, sjálfsstjórn og bindindi, – ekkert af þessu er í andstöðu við lög Gyðinga.
Ef við lifum í krafti heilags anda, þá fylgjum við einnig leiðsögn hans í einu og öllu.
Heilagur andi veitir líf og frið, en ef við hlýðum eigingirninni þá endar slíkt með dauða,
O Espírito de Deus em nós
Vosso corpo é templo do Espírito Santo. Deus fortalece com poder no homem interior pelo seu Espírito.
Hafið þið ekki skilið að líkami ykkar er híbýli heilags anda, sem Guð gaf ykkur og lifir í ykkur? Þið eigið ekki líkama ykkar! Guð hefur keypt ykkur dýru verði. Vegsamið því Guð með líkama ykkar.
En ef þú gefst Drottni, þá ert þú og Kristur samtengdir sem einn maður.
Enginn getur vitað með vissu hvað einhver annar hugsar eða hvernig sá er í raun og veru, heldur þekkir hver og einn aðeins sjálfan sig. Og enginn getur þekkt hugsanir Guðs nema andi Guðs sjálfs.
Hvað á ég þá að gera? Hvort tveggja. Ég vil biðja í tungum og líka á venjulegu máli, sem allir skilja. Ég vil syngja í tungum, en líka á venjulegu máli, svo ég geti skilið lofgjörð þá sem ég flyt.
Ég bið að hann gefi ykkur af ríkdómi sínum, sem aldrei þrýtur, svo að þið styrkist fyrir heilagan anda hið innra með ykkur. Ég bið þess einnig að Kristur fái stöðugt meira rúm í hjörtum ykkar og megi búa í ykkur vegna trúarinnar. Ég bið þess að þið festið djúpar rætur í kærleika Guðs – það er góður jarðvegur.
hef ég ekki látið af að þakka Guði fyrir ykkur. Ég bið Guð þess stöðugt að hann, faðir Drottins Jesú Krists, gefi ykkur visku, svo að þið skiljið fullkomlega hver Kristur er og hvað hann hefur gert fyrir ykkur.
Við eigum því ekki að líkjast hræddum og niðurlútum þrælum, heldur eigum við að hegða okkur eins og einkabörn Guðs. Hann hefur tekið okkur inn í fjölskyldu sína og leyft okkur að kalla sig föður, já, pabba! Heilagur andi segir okkur að við séum Guðs börn og það erum við!
Heilagur andi segir okkur að við séum Guðs börn og það erum við!
Við eigum því ekki að líkjast hræddum og niðurlútum þrælum, heldur eigum við að hegða okkur eins og einkabörn Guðs. Hann hefur tekið okkur inn í fjölskyldu sína og leyft okkur að kalla sig föður, já, pabba!
Syndin veldur því að líkamar ykkar munu deyja þótt þið séuð kristin, en andi ykkar mun hins vegar lifa, því að Kristur hefur lífgað hann.
því að allir þeir, sem láta anda Guðs leiða sig, eru Guðs börn.
Eins er með trúna og heilagan anda. Heilagur andi hjálpar okkur að biðja og leysa dagleg vandamál. Oft vitum við ekki hvers við eigum að biðja eða hvaða orð við eigum að nota, en þá kemur heilagur andi okkur til hjálpar og gefur okkur réttu orðin í bænina.
Verið aldrei löt við vinnu, heldur þjónið Drottni með gleði og í krafti heilags anda.
Með þetta í huga bið ég fyrir ykkur, heiðingjunum, að Guð vonarinnar fylli ykkur fögnuði og friði trúarinnar, svo að von ykkar styrkist æ meira í krafti heilags anda.
Vida no Espírito
Deus é Espírito e importa que os que o adoram o adorem em espírito e em verdade. O Espírito vivifica e transforma.
„Kona," svaraði Jesús, „sá tími kemur, þegar ekki skiptir máli hvort við tilbiðjum föðurinn hér eða í Jerúsalem. Spurningin er ekki hvar við tilbiðjum, heldur hvernig. Hverjum manni er nauðsynlegt að fá hjálp heilags anda til að geta tilbeðið Guð á réttan hátt og eftir hans vilja. Þið Samverjar biðjið í blindni, af því að þið þekkið hann ekki nema að litlu leyti, en við Gyðingar þekkjum hann því að heimurinn fær hjálpræðið frá okkur."
„Kona," svaraði Jesús, „sá tími kemur, þegar ekki skiptir máli hvort við tilbiðjum föðurinn hér eða í Jerúsalem. Spurningin er ekki hvar við tilbiðjum, heldur hvernig. Hverjum manni er nauðsynlegt að fá hjálp heilags anda til að geta tilbeðið Guð á réttan hátt og eftir hans vilja. Þið Samverjar biðjið í blindni, af því að þið þekkið hann ekki nema að litlu leyti, en við Gyðingar þekkjum hann því að heimurinn fær hjálpræðið frá okkur."
Við sem kristin erum höfum enga blæju fyrir andlitum okkar. Við getum verið eins og speglar sem endurvarpa dýrð Drottins og þegar andi hans starfar í okkur, þá líkjumst við honum sífellt meira.
Kæru vinir, fyrst við eigum slík loforð sem þessi, snúum þá baki við öllu sem rangt er, hvort sem það er líkamlegt eða andlegt. Hreinsum okkur, lifum í sannri trú og gefum okkur Guði einum á vald.
Heilagur andi sem Guð gaf þér, vill ekki að við óttumst mennina, heldur vöxum í kærleika og krafti Guðs og gætum stillingar.
Heilagur andi sem Guð gaf þér, vill ekki að við óttumst mennina, heldur vöxum í kærleika og krafti Guðs og gætum stillingar.
Gleði mín er ekki á þrotum, því ég veit að þið biðjið fyrir mér og heilagur andi hjálpar mér, og þá verður þetta allt mér til góðs.
Blessun Drottins Jesú Krists sé með anda ykkar.
Promessas do Espírito
Derramarei o meu Espírito sobre toda a carne. O Espírito revela, guia e capacita os filhos de Deus.
Cuidar do espírito
Cria em mim um coração puro e renova dentro de mim um espírito reto. O espírito quebrantado Deus não rejeita.
Og þegar þú hefur refsað mér, þá gefðu mér gleði mína á ný. Einblíndu ekki á syndir mínar, heldur afmáðu þær allar. Skapaðu í mér nýtt og hreint hjarta, ó Guð! Gefðu mér þinn heilaga anda svo að ég hugsi rétt og þrái það sem gott er.
Frelsaðu mig frá dauðans háska, ó Guð minn. Þú einn getur frelsað mig! Leyf mér að syngja um miskunn þína, Drottinn. Opnaðu varir mínar svo að ég megi vegsama þig!
Þegar réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn og frelsar þá úr nauðum.
Reiddu þig ekki á hjálp valdsmanna, því að þeir falla og ekkert verður úr aðstoð þeirra. Þeir munu deyja og andi þeirra líður burt, áform þeirra verða að engu.
Guðs orð er lifandi og máttugt. Það er beittara en tvíeggjað sverð og smýgur á augabragði inn í innstu fylgsni hugans og sýnir okkur hvernig við erum í raun og veru.
Eins og líkaminn deyr þegar andinn yfirgefur hann, þannig er trúin líka dauð, ef hún birtist ekki í góðum verkum.
Elsku vinir, trúið ekki öllu sem þið heyrið, enda þótt menn segi að það sé boðskapur frá Guði. Sannprófið það fyrst. Margir falskennendur eru nú á ferð um heiminn.
Guð hefur einnig gefið okkur heilagan anda og það sýnir að við lifum í samfélagi við hann.
Fyrst þið syndugir menn gefið börnum ykkar góðar gjafir, þá er víst að faðirinn á himnum gefur þeim heilagan anda sem biðja um hann."
Síðan birtist eitthvað sem líktist eldtungum og settist á höfuð þeirra. Þá fylltust þeir allir heilögum anda og fóru að tala tungumál, sem þeir höfðu aldrei lært, en heilagur andi gerði þeim kleift að tala.