Jesus te ama
Jesus te ama — esta é a mensagem mais poderosa do universo. O amor de Cristo excede todo entendimento e nos alcança onde quer que estejamos, como somos.
O amor de Jesus
Ninguém tem maior amor do que aquele que dá a vida pelos amigos. Jesus demonstrou o amor supremo na cruz do Calvário.
Og nú skal ég segja ykkur hvernig við getum prófað kærleikann: Sá elskar mest, sem fórnar lífi sínu fyrir vini sína.
Ég krefst þess af ykkur að þið elskið hver annan jafn innilega og ég elska ykkur.
Eins og faðirinn hefur elskað mig, hef ég elskað ykkur, verið því stöðugir í elsku minni.
„Vegna þess að ég vil aðeins opinbera mig þeim sem elska mig og hlýða mér," svaraði Jesús. Síðan bætti hann við: „Faðirinn mun einnig elska þá og við munum koma til þeirra og búa hjá þeim.
Nú gef ég ykkur nýtt boðorð: „Elskið hver annan jafn innilega og ég hef elskað ykkur."
Amados por Ele
Deus prova seu amor em que Cristo morreu por nós quando ainda éramos pecadores. O amor de Jesus é incondicional e eterno.
En Guð sýndi okkur takmarkalausan kærleika sinn, er hann sendi Krist í dauðann fyrir okkur meðan við vorum enn fjötruð í synd og aðskilin frá honum.
Lifið í kærleika og fylgið þannig fordæmi Krists, sem elskaði ykkur og fórnaði sjálfum sér frammi fyrir Guði til að taka burt syndir ykkar. Kærleikur Krists til ykkar var Guði mjög að skapi, rétt eins og sætur ilmur.
Ég bið að hann gefi ykkur af ríkdómi sínum, sem aldrei þrýtur, svo að þið styrkist fyrir heilagan anda hið innra með ykkur. Ég bið þess einnig að Kristur fái stöðugt meira rúm í hjörtum ykkar og megi búa í ykkur vegna trúarinnar. Ég bið þess að þið festið djúpar rætur í kærleika Guðs – það er góður jarðvegur. Það er einnig bæn mín að þið fáið sjálf að reyna og skilja, eins og öll börn Guðs ættu að gera, hversu víður og langur, djúpur og hár, kærleikur hans er. Kærleikur hans er svo mikill að þið munuð aldrei geta þekkt hann eða skynjað til fulls. Þannig mun Guð fylla og auðga líf ykkar með elsku sinni og blessun.
Af þessu má sjá að kærleikur okkar til hans er afleiðing af kærleika hans til okkar.
Drottinn sýndi mér mikla miskunn, því hann kenndi mér að treysta sér og síðan fyllti hann mig kærleika sínum.