Medo da morte
O medo da morte é universal, mas Cristo o venceu. A Bíblia ensina que para quem crê, a morte perdeu o aguilhão — não é mais motivo de terror, mas porta para a eternidade com Deus.
Cristo venceu a morte
Jesus assumiu carne e sangue para, pela morte, destruir o que tinha o poder da morte e libertar os que viviam em escravidão pelo medo dela.
Fyrst við, börn Guðs, erum mannlegar verur holdi klæddar, þá varð hann einnig hold og blóð er hann fæddist sem maður, því aðeins á þann hátt gat hann dáið og með dauða sínum brotið vald djöfulsins, sem hafði vald dauðans. Þetta var eina leið hans til að frelsa þá, sem hafa lifað allt sitt líf í stöðugum ótta við dauðann.
Þegar þetta gerist, munu rætast þessi orð Biblíunnar: „Dauðinn er uppsvelgdur í sigur. Dauði, hvar er sigur þinn? Hvar er broddur þinn?" Syndin – broddurinn sem veldur dauða – verður þá orðin að engu og lögmálið, sem afhjúpar syndir okkar, mun ekki lengur dæma okkur.
Þökkum Guði fyrir allt þetta. Það er Guð sem gefur okkur sigurinn fyrir Drottin, Jesú Krist.
Okkar gamla eðli, sem elskaði syndina, var grafið með honum í skírninni þegar hann dó. Og þegar Guð faðir reisti hann aftur til lífsins með dýrlegum krafti, þá eignuðumst við hlutdeild í lífi hans.
Við erum orðin samgróin honum og þegar hann dó, þá dóum við með honum. Nú eigum við sameiginlega hlutdeild í nýja lífinu hans og munum rísa upp á sama hátt og hann.
A promessa da vida eterna
Quem ouve a Palavra e crê já passou da morte para a vida. O amor perfeito lança fora o medo, até o medo da morte.
Ég segi ykkur satt og legg á það áherslu, að hver sem heyrir orð mín og trúir Guði, sem sendi mig, eignast eilíft líf og mun aldrei hljóta dóm fyrir syndir sínar, heldur hefur hann þá þegar stigið yfir frá dauðanum til lífsins.
„Ég er sá sem reisi hina dauðu og gef þeim líf," sagði Jesús. „Hver sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.
Ég segi ykkur satt: Sá sem hlýðir orðum mínum, mun aldrei að eilífu sjá dauðann."
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf.
Okkur er óþarft að óttast þann, sem elskar okkur, því að hans fullkomni kærleikur rekur burt allan ótta. Ef við erum hrædd, þá er það vegna þess að við höldum að Guð muni refsa okkur – við erum ekki fyllilega sannfærð um að hann elski okkur.
Não temas
Jesus disse: não temais os que matam o corpo. No vale da sombra da morte, o Senhor está conosco como pastor e protetor.
Óttist ekki þá sem aðeins geta deytt líkama ykkar, en megna ekki að skaða sálina. Óttist Guð, því að hann getur tortímt sál og líkama í helvíti.
Og jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér og hughreystir mig!
Hann mun strjúka hvert tár af augum þeirra og dauðinn mun ekki framar verða til. Þar verður engin sorg, enginn grátur og engin kvöl, allt slíkt er horfið og kemur aldrei aftur."
Innan skamms mun djöfullinn varpa sumum ykkar í fangelsi til þess að reyna ykkur, en vertu þó ekki hræddur vegna þjáninganna sem bíða þín. Þið munuð verða ofsótt í tíu daga. En gefist ekki upp, jafnvel þótt þið þurfið að horfast í augu við dauðann. Vertu trúr allt til dauða og þá mun ég gefa þér kórónu lífsins – dýrlega framtíð, sem aldrei tekur enda.
því að hver sem ákallar Drottin mun frelsast.
Nei! Gamla testamentið segir að sé það vilji Guðs, verðum við að vera reiðubúin að horfast í augu við dauðann hvenær sem er – já, vera eins og lömb sem bíða slátrunar. En hvað sem þessu líður þá erum við sigursæl í Kristi, honum sem elskaði okkur svo heitt að hann dó fyrir okkur. Ég er sannfærður um að ekkert mun geta gert okkur viðskila við kærleika Krists, hvorki dauði né líf, né nokkur önnur öfl á himni eða jörðu. Atburðir líðandi stundar, áhyggjuefni morgundagsins, hamfarir náttúrunnar – ekkert af þessu mun nokkru sinni megna að gera okkur viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.