Sexo
A Bíblia trata a sexualidade como um presente de Deus para o contexto do casamento. As Escrituras celebram a intimidade conjugal e orientam sobre pureza e santidade sexual.
A sexualidade no plano de Deus
Desde a criação, Deus projetou a intimidade sexual como expressão de amor entre marido e mulher, abençoando a união conjugal.
„Hafið þið ekki lesið Biblíuna?" spurði hann. „Þar stendur að í upphafi hafi Guð skapað karl og konu, og sagt að karlmaðurinn ætti að fara að heiman frá foreldrum sínum og búa með eiginkonu sinni upp frá því. Þau tvö eiga að verða eitt – ekki framar tvö, heldur eitt! Enginn maður má aðskilja það sem Guð hefur sameinað."
A santidade na intimidade
O leito conjugal é honroso. A Bíblia celebra a alegria da intimidade dentro do casamento e orienta o casal ao amor e respeito mútuo.
Hjónabandið sé í heiðri haft og öll þau heit sem því fylgja. Lifið siðferðislega hreinu lífi, því að Guð mun sannarlega refsa öllum sem lifa í siðleysi og drýgja hór.
Karlmaðurinn á að veita konu sinni það sem henni ber og konan manninum. Stúlka sem giftist hefur ekki lengur fullan rétt yfir eigin líkama, því eiginmaður hennar hefur einnig sinn rétt til hans. Á sama hátt hefur eiginmaðurinn ekki lengur fullt vald yfir sínum líkama, því að hann tilheyrir konu hans.
En ef þið getið ekki haft fullt vald á sjálfum ykkur, þá skuluð þið giftast, því að betra er að giftast en brenna af girnd.
Vitið þið ekki að líkamar ykkar eru limir Krists – hlutar af honum? Ætti ég þá að taka hluta Krists og sameina hann skækju? Nei. Vitið þið ekki að hafi maður mök við vændiskonu, verður hann hluti af henni og hún hluti af honum? Guð segir í orði sínu að í augum hans verði þau eitt hold. En ef þú gefst Drottni, þá ert þú og Kristur samtengdir sem einn maður.
Pureza sexual
Deus nos chama à santificação e à fuga da imoralidade. O corpo do cristão é templo do Espírito Santo e deve ser tratado com honra.
Haldið ykkur því frá öllu kynferðislegu lauslæti. Engin synd hefur jafnmikil áhrif á líkamann og sú. Ef þið syndgið á þennan hátt, þá er það gegn ykkar eigin líkama. Hafið þið ekki skilið að líkami ykkar er híbýli heilags anda, sem Guð gaf ykkur og lifir í ykkur? Þið eigið ekki líkama ykkar! Guð hefur keypt ykkur dýru verði. Vegsamið því Guð með líkama ykkar.
Því að Guð vill að þið séuð heilög og hrein og forðist allt lauslæti. Sérhver umgangist maka sinn í heilagleik og sæmd, en ekki í brennandi girnd eins og heiðingjarnir, sem hvorki þekkja Guð né vilja hans.
Lauslæti, óhreinleiki eða ágirnd á ekki að nefnast á nafn á meðal ykkar.
En ég segi: Sá sem horfir á konu með girndarhug, hefur þegar drýgt hór með henni í huga sínum.
Liðið er á nóttina og brátt mun birta af endurkomudegi hans. Leggið því niður hin illu verk myrkursins og takið vopnin sem ljósinu tilheyra, því að það er skylda okkar sem lifum í ljósi Krists.
Látið allt sem þið gerið bera vott um sanngirni ykkar og manngæsku, svo að öllum líki líferni ykkar vel. Sóið ekki tíma ykkar við siðlaus samkvæmi og drykkjuskap, ekki heldur við kynsvall og fýsn, rifrildi eða öfund.
Þeir töldu sig ekki þurfa á þekkingu frá Guði að halda og urðu því heimskingjar. Í stað þess að tilbiðja hinn dýrlega, eilífa Guð, bjuggu þeir sér til goð sem líktust fuglum, ferfætlingum, skriðdýrum og dauðlegum mönnum.
Þess vegna hefur Guð gefið þeim lausan tauminn og leyft þeim að svala girndum sínum í afskræmdu kynlífi og gera hvað sem þá langaði til, einnig að meðhöndla líkama hvers annars á svívirðilegan og viðbjóðslegan hátt. Í stað þess að trúa því sem þeir vita að er sannleikurinn um Guð, kjósa þeir að trúa lyginni! Afleiðingin er sú að þeir tilbiðja það sem Guð hefur skapað, í stað þess að tilbiðja Guð, skaparann.
Þess vegna hefur Guð ofurselt mennina svívirðilegum girndum. Þeir ganga jafnvel svo langt að konurnar snúast gegn eðli sínu og leita kynferðislegrar fullnægju hver með annarri. Sama er að segja um karlmennina. Í stað þess að hafa eðlileg mök við konurnar, brenna þeir af girnd hver til annars og lifa í skömm hver með öðrum. Af þessu hafa þeir uppskorið þá bölvun sem þeir eiga sannarlega skilið.