Publicidade

Hebreus 10

Andstæður gamla og nýja sáttmálans

1 Hið gamla lagakerfi Gyðinga gaf aðeins óljósa hugmynd um allt hið góða, sem Kristur ætlaði veita okkur. Fórnirnar, sem færðar voru samkvæmt þessu gamla lagakerfi, voru endurteknar og æ, ár eftir ár, en samt sem áður gátu þær ekki frelsað neinn sem lifði eftir lögunum. 2 Ef svo hefði verið, þá hefði ein fórn verið nóg, menn hefðu hreinsast í eitt skipti fyrir öll og sektarkennd þeirra þar með verið fjarlægð. 3 En það var öðru nær. Í stað þess létta á samvisku manna, minnti þessi árlega fórn þá á óhlýðni þeirra og sekt. 4 Það er útilokað blóð nauta og geita geti hreinsað burt syndir nokkurs manns.

5 Þetta er ástæða þess, sem Kristur sagði þegar hann kom í heiminn: Guð, þú lætur þér ekki nægja blóð nauta og geita, og því hefur þú gefið mér þennan líkama, til þess ég leggi hann sem fórn á altari þitt. 6 Þú gerðir þig ekki ánægðan með dýrafórnir dýrum væri slátrað og þau síðan brennd frammi fyrir þér sem syndafórn. 7 Sjá, ég er kominn til hlýða vilja þínum, til fórna lífi mínu, eins og spádómar Biblíunnar sögðu fyrir um."

8 Fyrst sagði Kristur Guð gerði sér ekki góðu hinar ýmsu fórnir og gjafir, sem krafist var samkvæmt lögmálinu. 9 Síðan bætti hann við: Hér er ég. Ég er kominn til fórna lífi mínu."

Þá afnam hann gamla kerfið og innleiddi þess í stað annað miklu betra. 10 Samkvæmt þessari nýju hjálpræðisleið fáum við fyrirgefningu og hreinsun í eitt skipti fyrir öll, vegna þess Kristur fyrir okkur. 11 Samkvæmt gamla sáttmálanum stóðu prestarnir frammi fyrir altarinu dag eftir dag og báru fram fórnir, sem alls ekki gátu tekið burt syndir okkar. 12 Kristur fórnaði hins vegar sjálfum sér fyrir syndir okkar frammi fyrir Guði í eitt skipti fyrir öll. því loknu settist hann við hægri hönd Guðs, í æðsta heiðurssæti sem til er, 13 og bíður þess þar óvinir hans verði lagðir fótum hans. 14 Með þessari einu fórn fullkomnaði hann þá sem helga sig Guði.

15 Þetta staðfestir heilagur andi er hann segir: 16 Þennan sáttmála vil ég gera við Ísraelsmenn, enda þótt þeir hafi rofið fyrri sáttmálann: Lög mín vil ég grópa í hugskot þeirra svo þeir þekki vilja minn. Ég mun rita lög mín í hjörtu þeirra, svo þeir þrái hlýða mér"." 17 Síðan bætir hann við: Aldrei framar mun ég minnast synda þeirra afbrota."

18 Af því syndirnar eru fyrirgefnar og gleymdar eilífu, þá er fórnanna ekki lengur þörf. 19 er svo komið, kæru vinir, við getum gengið með djörfung inn í hið allra helgasta, þar sem Guð er, og er það dauða Jesú þakka. 20 Þetta er hinn nýi og lifandi vegur, sem Kristur opnaði okkur þegar hann klauf í sundur fortjaldið sinn jarðneska líkama svo við gætum gengið fram fyrir auglit heilags Guðs.

21 Fyrst þessi mikli æðsti prestur okkar hefur með höndum stjórnina á húsi Guðs, 22 þá skulum við ganga rakleitt fram fyrir Guð. Verum einlæg, með hreina samvisku og treystum því hann taki á móti okkur, vegna þess blóði Krists hefur verið stökkt á okkur" og líkamar okkar verið þvegnir hreinu vatni.

23 getum við með öruggri vissu horft fram til þess sem Guð hefur heitið okkur. Ekki er lengur rúm fyrir efann. getum við óhikað sagt við eigum hjálpræðið, og það samkvæmt orði Guðs.

Einbeitið ykkur því gera hið góða

24 Gætum hvert öðru og hvetjum hvert annað til sýna hjálpsemi og gera öðrum gott.

25 Vanrækjum ekki söfnuð okkar eins og sumir gera, heldur hvetjum og áminnum hvert annað, sérstaklega er endurkoma Jesú nálgast.

26 Ef við syndgum af ásettu ráði, eftir hafa kynnst sannleikanum um fyrirgefningu Guðs, þá gagnar dauði Krists okkur ekki, og ekki er lengur um neina undankomuleið ræða frá syndinni. 27 Þá tekur aðeins við hræðileg bið eftir dómi, því reiði Guðs mun þurrka út alla óvini hans. 28 Hver , sem neitaði hlýða lögum Móse, var skilyrðislaust tekinn af lífi, ef tvö eða þrjú vitni voru synd hans. 29 Hugsið ykkur þá hve miklu þyngri refsingu hlýtur, sem fótum treður son Guðs og lítilsvirðir blóð hans metur það vanheilagt og hryggir þar með og smánar heilagan anda, sem boðar mönnunum miskunn Guðs.

30 Við þekkjum þann sem sagði: Réttvísin er í mínum höndum og mitt er refsa." Hann sagði einnig: Drottinn mun sjálfur dæma í málum þessara manna." 31 Hræðilegt er falla í hendur hins lifandi Guðs.

32 Gleymið ekki þeim dýrlega tíma er þið fyrst heyrðuð um Krist. Munið hversu fast þið hélduð ykkur Drottni, þrátt fyrir erfiðleikana sem ykkur mættu, 33 og þótt hlegið væri ykkur eða þið barin. Þið studduð aðra, sem urðu fyrir sama aðkasti, 34 og þjáðust með þeim sem varpað var í fangelsi. Og jafnvel þótt allt, sem þið ættuð, væri tekið frá ykkur, hélduð þið samt gleði ykkar, því þið vissuð á himnum ættuð þið í vændum það sem betra var, nokkuð sem enginn gæti nokkru sinni tekið frá ykkur.

35 Látið ekkert, hvað sem á dynur, ræna ykkur gleði ykkar og traustinu á Drottni. Minnist launanna, sem ykkar bíða. 36 Ef þið ætlist til Guð standi við loforðin, sem hann hefur gefið ykkur, þá verðið þið einnig sýna úthald og fara eftir hans vilja. 37 Endurkomu Drottins er ekki langt bíða. 38 Þeir, sem öðlast hafa réttlæti Guðs fyrir trú, verða lifa í trú og treysta honum í einu og öllu. Ef þeir hins vegar skjóta sér undan, þá eru þeir ekki Guði skapi.

39 En við erum ekki menn sem snúa baki við Guði og hjálpræði hans. Nei, við erum menn trúarinnar og munum erfa hjálpræði hans.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-