Publicidade

Hebreus 12

1 Virðum fyrir okkur þessar trúarhetjur og látum þær verða okkur til hvatningar. Losum okkur við allt, sem hindrar okkur og fjötrar. Þá á ég sérstaklega við syndir, sem vafist hafa um fætur okkar og hindrað okkur í ganga áfram veg trúarinnar. Hlaupum þolgóð skeiðið, sem Guð hefur ætlað okkur.

2 Horfum stöðugt á Jesú, höfund og leiðtoga trúar okkar. Hann var fús deyja smánardauða á krossi, vegna gleðinnar, sem hann vissi biði hans, og situr hann í heiðurssæti við hástól Guðs. 3 Ef þið viljið komast hjá því missa kjarkinn og gefast upp, minnist þá þolinmæði hans er hann þjáðist af völdum syndugra manna. 4 Enn hafið þið ekki þurft berjast svo gegn synd og freistingum sviti ykkar hafi orðið blóðdropum.

Refsing Guðs verður okkur til góðs

5 Hafið þið alveg gleymt þessum hvatningarorðum sem Guð sagði við ykkur, börnin sín: Sonur minn, reiðstu ekki þótt Drottinn refsi þér. Misstu ekki kjarkinn, þótt hann bendi þér á mistök þín, 6 því refsing hans sannar hann elskar þig. Ef hann hirtir þig, þá sýnir það aðeins þú ert í raun og veru barn hans."

7 Leyfðu Guði aga þig, því það gera allir feður sem elska börnin sín. Hafið þið nokkru sinni heyrt talað um son sem aldrei hlaut umvöndun? 8 Ef Guð lætur hjá líða refsa ykkur, þegar þið eigið það skilið eins og feður almennt refsa börnum sínum þá er það merki þess þið séuð alls ekki hans börn og tilheyrið þar af leiðandi ekki fjölskyldu hans. 9 Við virðum okkar jarðnesku feður, enda þótt þeir refsi okkur, ættum við þá ekki enn frekar taka ögun Guðs, svo við lærum lifa lífinu á réttan hátt? 10 Okkar jarðnesku feður öguðu okkur aðeins í nokkur ár og aðeins í góðum tilgangi. Ögun Guðs er alltaf rétt og okkur fyrir bestu, því hún veitir okkur hlutdeild í heilagleika hans. 11 Refsing er óþægileg meðan á henni stendur, og jafnvel sársaukafull! En hver er árangurinn? Persónuleiki og skilningur mannsins vex og þroskast.

12 Herðið tökin, þið lúnu hendur, og réttið úr ykkur, magnþrota hné! 13 Ryðjið öllum hindrunum úr vegi svo þeir sem á eftir koma, veikir og vanmegna, hrasi ekki á göngunni, heldur styrkist í hverju skrefi.

14 Forðist allar deilur og leitist við lifa hreinu og heilögu lífi, því án helgunar mun enginn sjá Drottin. 15 Gefið gætur hvert öðru, svo þið missið ekki af blessun Guðs. Gætið þess verða ekki beisk hvert við annað, því beiskjan er trúnni til mikils tjóns. 16 Hafið gát a enginn lifi lauslæti eða fjarlægist Guð, eins og Esaú. Hann mat frumburðarrétt sinn til jafns við einn málsverð. 17 Síðar, þegar hann vildi endurheimta réttindi sín, var allt um seinan og beisk iðrunartár hans fengu engu breytt. Munið þetta og gætið ykkar vel.

Mikilleiki Guðs

18 Þið hafið ekki þurft horfast í augu við ógnir, æðandi eld, sorta, myrkur og óveður, eins og Ísraelsmenn á Sínaífjalli, þegar Guð gaf þeim lögmálið. 19 Þá kvað við skær lúðurhljómur og rödd sem flutti þvílíkan boðskap fólkið bað Guð hætta tala. 20 Og þegar Guð sagði sérhver skepna sem snerti fjallið myndi deyja, þá hopaði fólkið á hæl. 21 Sjálfur Móse varð svo hræddur við þessa sýn hann skalf af ótta.

22 eruð þið komin Síonfjalli, til borgar lifandi Guðs, hinnar himnesku Jerúsalem, til fundar við óteljandi engla, 23 til kirkju Krists, sem telur alla sem skráðir eru á himnum, til Guðs, sem alla dæmir, til hinna endurleystu anda, sem fullkomnir eru orðnir, 24 til sjálfs Jesú, sem færði okkur nýjan og dásamlegan sáttmála sinn, og til blóðsins, sem úthellt var og veitir náð og fyrirgefningu í stað þess hrópa á hefnd, eins og blóð Abels.

25 Gætið þess hlýða honum, sem talar til ykkar. Ísraelsmönnum varð ekki bjargað eftir þeir neituðu hlýða á Móse, sem þó var aðeins maður. Við erum ekki síður í skelfilegri hættu, ef við óhlýðnumst Guði, sem talar til okkar frá himnum. 26 Þegar Guð talaði frá Sínaífjalli var rödd hans svo sterk jörðin skalf. En næst," segir hann, mun ég ekki aðeins hrista jörðina, heldur einnig himininn!" 27 Með þessu á hann við hann muni fjarlægja allt, sem ekki fær staðist, svo einungis það sem stenst verði eftir.

28 Fyrst ríki okkar er ósigrandi, skulum við þóknast Guði með því þjóna honum með þakklátum hjörtum, heilögum ótta og lotningu, 29 því Guð er eyðandi eldur.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-