11,12 Á leið sinni frá Jerúsalem komu þeir að þorpi á landamærum Galíleu og Samaríu. Þá sáu þeir tíu holdsveika menn, sem stóðu langt frá, utan við þorpið, 13 og hrópuðu: „Jesú, meistari, miskunnaðu okkur!"
14 Hann leit á þá og sagði: „Farið til prestanna og fáið hjá þeim vottorð um að þið séuð heilbrigðir." Á meðan þeir voru á leiðinni til prestanna, hvarf þeim holdsveikin!
15 Einn þeirra sneri þá aftur til Jesús og hrópaði: „Guði sé lof! Ég er heilbrigður!" 16 Hann fleygði sér á götuna við fætur Jesú og þakkaði honum. Maður þessi var Samverji, en Gyðingar fyrirlitu þá.
17 Þá spurði Jesús: „Voru þeir ekki tíu sem ég læknaði? Hvar eru hinir níu? 18 Var þessi útlendingur sá eini sem sneri við til að gefa Guði dýrðina?"
19 Síðan sagði hann við manninn: „Stattu upp og farðu leiðar þinnar, trú þín hefur læknað þig."