15 Þegar englarnir voru farnir aftur til himna, sögðu hirðarnir hver við annan: „Flýtum okkur til Betlehem og sjáum þennan stórkostlega atburð, sem Drottinn hefur sagt okkur frá!"
16 Þeir hlupu til þorpsins og fundu bæði Maríu, Jósef og barnið í jötunni. 17 Fjárhirðarnir sögðu síðan öllum hvað gerst hafði og hvað engillinn hafði sagt þeim um þetta barn. 18 Allir sem heyrðu frásögn hirðanna, undruðust mjög,