Pular para o conteúdo
Publicidade

Salmos 10

1 Drottinn, hvers vegna ert þú víðs fjarri og gerir ekkert í málinu?! Hvers vegna felur þú þig þegar ég þarfnast þín svo mjög? 2 Komdu og lækkaðu rostann í hinum hrokafullu og illgjörnu sem ofsækja lítilmagnann. Láttu illskubrögð þeirra koma þeim sjálfum í koll! 3 Því þessir menn stæra sig af illsku sinni, hæða Guð og hrósa þeim sem Drottinn fyrirlítur. safna auði er þeirra hjartans mál.

4 Þessir vondu og sjálfumglöðu menn virðast halda Guð ekki til. leita Guðs, það dettur þeim ekki í hug! 5 En samt þeir árangri og óvinir þeirra lúta í lægra haldi fyrir þeim. Þeir vita ekki refsing þín bíður þeirra.

6 hrokafulli segir:. Hvorki Guð menn geta stöðvað mig, ég mun finna einhverja leið!" 7 Munnur hans er fullur af formælingum, lygi og ofbeldi. Hann hrósar sér af illum áformum. 8 Slíkir menn læðast í skúmaskotum borgarinnar og myrða þann sem fram hjá gengur. 9 Eins og ljón sitja fyrir bráð sinni, sitja þeir fyrir fátæklingnum, tilbúnir hremma hann. Þeir leggja snörur fyrir fórnarlömb sín, veiða þau í net. 10 Hinir ólánssömu undrast mátt þeirra og falla fyrir skeytum þeirra. 11 Þeir segja við sjálfa sig: Guð sér þetta ekki, og hann mun aldrei komast því."

12 Drottinn, rís þú upp! Refsa þeim, ó Guð! Gleymdu ekki fátæklingunum öðrum sem eiga bágt. 13 Hvers vegna lætur þú illmennin sem spotta þig, ganga laus? Þeir halda þú munir aldrei refsa þeim. 14 Drottinn, þú sérð verk þeirra. Þú þekkir öll þeirra brögð. Allt það böl og hryggðina sem þeir hafa valdið, gjörþekkir þú! Refsaðu þeim Drottinn, og það strax!

Drottinn, hinn bágstaddi treystir á þig og þú ert kallaður stoð lítilmagnans. 15 Brjóttu armlegg illgjörðamannanna. Veittu þeim eftirför uns enginn er eftir orðinn. 16 Drottinn er konungur um aldir alda! Þeim sem elta aðra guði verður útrýmt úr landi hans.

17 Drottinn, þú þekkir vonir hinna hógværu. Vissulega munt þú heyra hróp þeirra og hugga hjörtu þeirra. 18 Þú munt láta munaðarlausa og alla kúgaða rétti sínum, svo mennirnir þeir eru bara mold beiti ekki lengur ofbeldi.

Veja também