Publicidade

Salmos 116

1 Ég elska Drottin, því hann heyrir bænir mínar og svarar þeim. 2 Meðan ég dreg andann mun ég biðja til hans, því hann lítur niður og hlustar á mig.

3 Ég horfðist í augu við dauðann var hræddur og hnípinn. 4 Þá hvíslaði ég: Drottinn, frelsaðu mig!" 5 Náðugur er Drottinn og góður er hann! 6 Drottinn hlífir vondaufum og styrkir hjálparvana. 7 get ég slakað á og verið rór, því Drottinn hefur gert mikla hluti fyrir mig. 8 Hann hefur bjargað mér frá dauða, augum mínum frá gráti og fótum mínum frá hrösun. 9 Ég lifa! , lifa með honum hér á jörðu!

10,11 Þegar ég átti erfitt hugsaði ég: Þeir segja ósatt, allt muni snúast mér í hag. 12 En , hvernig get ég endurgoldið Drottni góðverk hans við mig? 13 Ég vil lyfta bikarnum og vínberjalegi fórn, þakka honum lífið. 14 Fórnina sem ég lofaði Drottni, færi ég í allra augsýn. 15 Hann elskar vini sína og lætur þá ekki deyja án gildrar ástæðu.

16 Drottinn, þú hefur leyst fjötra mína, því vil ég þjóna þér af öllu hjarta. 17 Ég vil lofa þig og færa þér þakkarfórn. 18,19 Í forgörðum musteris Drottins í Jerúsalem vil ég og það í augsýn allra færa honum allt sem ég hafði lofað. Dýrð Drottni!

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-