Publicidade

Salmos 118

1 Þakkið Drottni því hann er góður! Elska hans varir eilífu. 2 Söfnuður Ísraels lofi hann og segi: Elska hans varir eilífu!" 3 Og prestar Arons taki undir og syngi: Elska hans varir eilífu!" 4 Og heiðingjarnir sem trú hafa tekið segi: Elska hans varir eilífu."

5 Í angist minni bað ég til Drottins. Hann svaraði mér og frelsaði mig. 6 Ég er hans! Hvað skyldi ég þá óttast? Hvað geta dauðlegir menn gert mér? 7 Ég er vinur Drottins og hann hjálpar mér. Óvinir mínir skulu vara sig!

8 Betra er treysta Drottni, en reiða sig á menn. 9 Öruggara er leita hjálpar hans en stuðnings frá voldugum konungi!

10 Þó óvinaþjóðirnar ráðist gegn mér, allar sem ein, þá mun ég ganga fram undir gunnfána hans og gjöreyða þeim. 11 , þær umkringja mig og gera árás, en ég útrými þeim undir sigurmerki hans. 12 Þær þyrpast mér eins og flugnager, blossa gegn mér sem eyðandi eldur. En undir fána hans gjörsigra ég þá!

13 Þú, óvinur minn, gerðir allt til útrýma mér, en Drottinn kom mér til hjálpar. 14 Þegar orustan stóð sem hæst var hann styrkur minn og lofsöngur og endingu veitti hann mér sigur.

15,16 Á heimilum réttlátra syngja menn fagnaðarljóð, enda nýkomnar fréttir af sigri! 17 Ekki mun ég deyja, heldur lifa og segja öllum frá máttarverkum hans. 18 Drottinn refsaði mér, en ofurseldi mig ekki dauðanum.

19 Ljúkið upp hliðum musterisins ég ætla ganga inn og þakka Drottni. 20 Um þessi hlið liggur leiðin til Drottins og réttlátir ganga þar inn. 21 Ó, Drottinn, þökk þér þú bænheyrðir og bjargaðir mér.

22 Steinninn sem smiðirnir höfðu hafnað var gerður hornsteini hússins! 23 Það var vilja og fyrir tilstilli Drottins og er í einu orði sagt stórkostlegt! 24 Þetta er dagurinn sem Drottinn hefur gert. Fögnum og verum glöð í dag! 25 Ó, Drottinn, hjálpa þú. Frelsa þú okkur. Láttu okkur árangri. 26 Blessaður sem er koma, sem sendur er af Drottni. Við blessum þig frá helgidóminum.

27,28 Drottinn er ljósið sem lýsir okkur. Dansið fyrir honum, , alla leiðina altari hans. Hann er minn Guð, ég þakka honum og lofa hann. 29 Þakkið Drottni, því hann er góður! Miskunn hans varir eilífu!

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-