Publicidade

Salmos 121

1 Ég horfi til fjallanna, þar sem Jerúsalem rís. Hvaðan skyldi ég hjálp? 2 Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar! 3,4 Hann mun aldrei láta mig hrasa eða falla. Hann gætir mín öllum stundum og sefur ekki á verðinum.

5 Sjálfur Drottinn gætir þín! Hugleiddu það! Hann verndar þig gegn öllu illu og er þér alltaf nær. 6 Hann verndar þig jafnt daga sem nætur. 7 Hann frelsar þig frá illu og heldur í þér lífinu. 8 Hann hefur augun á þér hvort sem þú gengur út eða inn, hann varðveitir þig alla daga og eilífu.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-