Publicidade

Salmos 128

1 Sæll er hver sem heiðrar Drottin, treystir honum og hlýðir.

2 Honum mun launað með velgengni og hamingju. 3 Kona hans hugsar vel um heimilið og ekki mun þau skorta börn! Þarna sitja þau matnum, þróttmikil og frísk eins og ung olífutré! 4 Þannig launar Guð þeim sem elska hann og treysta honum.

5 Drottinn blessi þig frá musterinu á Síon. Alla þína ævidaga muntu gleðjast yfir velgengni Jerúsalem 6 og eignast marga afkomendur. Friður Guðs yfir Ísrael!

Veja também

Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-07-05_12-11-46-