1 Sæll er hver sá sem heiðrar Drottin, treystir honum og hlýðir.
2 Honum mun launað með velgengni og hamingju. 3 Kona hans hugsar vel um heimilið – og ekki mun þau skorta börn! Þarna sitja þau að matnum, þróttmikil og frísk eins og ung olífutré! 4 Þannig launar Guð þeim sem elska hann og treysta honum.