Pular para o conteúdo
Publicidade

Salmos 135

1,2 Hallelúja! Lýður Drottins lofi hann í forgörðum musteris hans. 3 Lofið Drottin því hann er góður, vegsamið hans dýrlega nafn. 4 Því Drottinn hefur kosið Ísrael sér eignarlýð.

5 Ég þekki mikilleik Drottins hann er öllum guðum æðri.

6 Það sem honum þóknast, það gerir hann á himni, á jörðu og einnig í hafdjúpunum! 7 Hann lætur skýin stíga upp af jörðinni og eldinguna leiftra svo rigni; og vindana lætur hann blása úr forðabúrum sínum. 8 Hann laust frumburði Egyptalands, bæði menn og dýr. 9 Undur og tákn gerði hann í augsýn Faraó og þjóna hans. 10 Fjölmennar þjóðir lagði hann velli, felldi volduga konunga 11 Síhon, Amoríta-konung og Óg, konung í Basan og konunga Kanaanslands 12 og gaf Ísrael lönd þeirra til eilífrar eignar.

13 Ó, Drottinn, nafn þitt varir eilífu! Frægð Drottins er kunn frá kynslóð til kynslóðar, 14 því hann réttir hlut þjóðar sinnar og miskunnar þjónum sínum.

15 Heiðingjarnir tilbiðja skurðgoð úr gulli og silfri, handaverk manna 16 mállaus og sjónlaus skurðgoð, 17 sem hvorki heyra draga andann. 18 Smiðir þeirra líkjast þeim og þeir sem tilbiðja þau.

19 Ísrael, lofa þú Drottin! Æðstuprestar Arons, vegsamið nafn hans, 20 og einnig þið prestar af Levíætt. , lofið nafn hans, öll þið sem treystið honum og óttist hann. 21 Þið íbúar Jerúsalem, lofið Drottin, hann sem býr í Jerúsalem! Hallelúja!

Veja também