Publicidade

Salmos 136

1 Þakkið Drottni, því hann er góður, miskunn hans varir eilífu!

2 Þakkið Guði guðanna, því miskunn hans varir eilífu. 3 Þakkið Drottni drottnanna, því miskunn hans varir eilífu.

4 Lofið hann sem einn gjörir furðuverk, því miskunn hans varir eilífu. 5 Lofið hann sem skapaði himininn, því miskunn hans varir eilífu. 6 Lofið hann sem aðskildi höf og lönd, því miskunn hans varir eilífu. 7 Lofið hann sem skapaði ljósgjafa himinsins, því miskunn hans varir eilífu. 8 Sólina til ráða deginum, því miskunn hans varir eilífu 9 og tunglið og stjörnurnar til ráða um nætur, því miskunn hans varir eilífu. 10 Lofið Guð sem laust frumburði Egypta, því miskunn hans við Ísrael varir eilífu. 11,12 Hann leiddi þá út með mætti sínum og sinni voldugu hendi, því miskunn hans við Ísrael varir eilífu. 13,14 Lofið Drottin sem opnaði þeim leið gegnum Rauðahafið, því miskunn hans varir eilífu, 15 en drekkti í hafinu hersveitum faraós, því miskunn hans við Ísrael varir eilífu.

16 Lofið hann sem leiddi lýð sinn yfir auðnina, því miskunn hans varir eilífu. 17 Lofið hann sem frelsaði lýð sinn undan voldugum konungum, því miskunn hans varir eilífu 18 og laust þá til dauða, þessa óvini Ísraels, því miskunn hans við Ísrael varir eilífu: 19 Síhon, Amoríta-konung, því miskunn Guðs við Ísrael varir eilífu 20 og Óg, konung í Basan því miskunn hans við Ísrael varir eilífu. 21 Guð gaf Ísrael lönd þessara konunga til eilífrar eignar, því miskunn hans varir eilífu. 22 , þau skyldu verða varanleg gjöf til Ísrael, þjóns hans, því miskunn hans varir eilífu.

23 Hann minntist okkar í eymd okkar, því miskunn hans varir eilífu 24 og frelsaði okkur frá óvinum okkar, því miskunn hans varir eilífu.

25 Hann gefur fæðu öllu því sem lifir, því miskunn hans varir eilífu. 26 , færið Guði himnanna þakkir, því miskunn hans varir eilífu!

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-