1 Drottinn, þú rannsakar mig út og inn og veist allt um mig. 2 Hvort ég sit eða stend, það veist þú. Og þú lest hugsanir mínar úr fjarlægð! 3 Þú veist hvert ég stefni og þekkir langanir mínar. Og hvort sem ég geng eða ligg, þá athugar þú það. Þú veist öllum stundum hvar ég er. 4 Þú þekkir orðin á tungu minni áður en ég opna munninn!