13 Öll líffæri mín hefur þú skapað, ofið þau í kviði móður minnar. 14 Þökk, að þú skapaðir mig eins undursamlega og raun ber vitni! Þetta er dásamlegt um að hugsa! Handaverk þín eru stórkostleg – það er mér alveg ljóst. 15 Þú varst til staðar þegar ég var myndaður í leyni. 16 Þú þekktir mig þegar ég var fóstur í móðurkviði og áður en ég sá dagsins ljós hafðir þú ákvarðað alla mína ævidaga – sérhver dagur var skráður í bók þína!
17,18 Hugsanir þínar, ó Guð, eru mér torskildar, en samt eru þær stórkostlegar! Ef ég reyndi að telja þær, þá yrði það mér ofviða því að þær eru fleiri en sandkorn á sjávarströnd! Já, ég mundi vakna eins og af draumi, en hugur minn, hann væri enn hjá þér!