Publicidade

Salmos 139

1 Drottinn, þú rannsakar mig út og inn og veist allt um mig. 2 Hvort ég sit eða stend, það veist þú. Og þú lest hugsanir mínar úr fjarlægð! 3 Þú veist hvert ég stefni og þekkir langanir mínar. Og hvort sem ég geng eða ligg, þá athugar þú það. Þú veist öllum stundum hvar ég er. 4 Þú þekkir orðin á tungu minni áður en ég opna munninn! 5 Þú bæði fylgir mér og ferð á undan mér, leggur hönd þína á höfuð mitt og blessar mig.

6 Þetta er stórkostlegt! , næstum of gott til vera satt! 7 Hvert get ég farið frá anda þínum eða flúið frá augliti þínu? 8 Fari ég til himna, þá ertu þar, til dánarheima, þá ertu líka þar! 9 Ef ég svifi á skýjum morgunroðans og settist við fjarlæga strönd, 10 einnig þar mundi hönd þín leiða mig og ég finna styrk þinn og vernd. 11 Og þótt ég reyndi læðast frá þér inn í myrkrið, þá myndi nóttin lýsa eins og dagur! 12 Því myrkrið hylur ekkert fyrir Guði, dagur og nótt eru jöfn fyrir þér.

13 Öll líffæri mín hefur þú skapað, ofið þau í kviði móður minnar. 14 Þökk, þú skapaðir mig eins undursamlega og raun ber vitni! Þetta er dásamlegt um hugsa! Handaverk þín eru stórkostleg það er mér alveg ljóst. 15 Þú varst til staðar þegar ég var myndaður í leyni. 16 Þú þekktir mig þegar ég var fóstur í móðurkviði og áður en ég dagsins ljós hafðir þú ákvarðað alla mína ævidaga sérhver dagur var skráður í bók þína!

17,18 Hugsanir þínar, ó Guð, eru mér torskildar, en samt eru þær stórkostlegar! Ef ég reyndi telja þær, þá yrði það mér ofviða því þær eru fleiri en sandkorn á sjávarströnd! , ég mundi vakna eins og af draumi, en hugur minn, hann væri enn hjá þér!

19 Vissulega munt þú, Guð, útrýma níðingunum. , burt með ykkur, þið morðingjar! 20 Þeir guðlasta og hreykja sér upp gegn þér hvílík heimska! 21 Drottinn, ætti ég ekki hata þá sem þig hata? Og ætti ég ekki hafa viðbjóð á þeim? 22 , ég hata þá, því þínir óvinir eru mínir óvinir.

23 Prófaðu mig Guð. Rannsakaðu hjarta mitt og hugsanir mínar. 24 Sýndu mér það í fari mínu sem hryggir þig og leiddu mig svo áfram veginn til eilífs lífs.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-