Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 142

1,2 Ég bið og bið til Drottins, stöðugt grátbæni ég hann. 3 Ég er hræddur og ráðvilltur. Þú einn þekkir leiðina framhjá gildrum óvina minna. 4 Enginn maður hugsar hlýtt til mín. Hvergi er góð ráð . Öllum er sama um mig. 5 Því bið ég til Drottins og segi: Drottinn, þú einn ert skjól mitt á jörðu, ég er hvergi öruggur nema hjá þér. 6 Heyrðu hróp mitt því ég er mjög þjakaður. Frelsaðu mig frá þeim sem ofsækja mig, því þeir eru mér yfirsterkari. 7 Leiddu mig úr þessum mikla vanda og þá mun ég lofa þig. Hinir guðhræddu munu þyrpast til mín og fagna með mér yfir hjálp þinni."

Veja também